Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júlí 2026 15:35 Samruninn hefur verið umdeildur og hafa verið gerðir undirskriftalistar þar sem fólk í kvikmyndageiranum mótmælir kaupunum. Getty Samruni Paramount-Skydance og Warner Bros Discovery hefur verið settur á bið í tvær vikur samkvæmt úrskurði alríkisdómara í Bandaríkjunum. Ástæðan er málsókn tólf ríkissaksóknara sem vilja koma í veg fyrir hann.
Um er að ræða bráðabirgðaúrskurð. Í úrskurði alríkisdómarans segir að ríkissaksóknararnir hafi sýnt fram á með ríkum hætti að samruninn muni draga úr samkeppni með ólögmætum hætti. Frekari úrskurðar er að vænta 3. ágúst um hvort haldið verði aftur af samrunanum allan þann tíma sem málið er til meðferðar en það gæti þýtt margra mánaða töf til viðbótar. Dómarinn tekur undir málflutning sækjanda um að þegar af samrunanum hafi orðið verði erfitt að vinda ofan af honum og því þurfi nú að staldra við. Risasamruni Paramount hefur gert kauptilboð í Warner Bros Discovery fyrir 81 milljarð dala. Kaupvirðið verður greitt til hluthafa Warner Bros sem hlutabréf í hinu nýja sameinaða félagi. Áætlað er að virði hins nýja félags verði 133 milljarðar dala. Samruninn hefur þegar verið samþykktur af stjórnum og hluthöfum beggja félaga, auk þess að hljóta samþykki dómsmálaráðuneytis Bandaríkjastjórnar en nú er ljóst að ferlið fer á bið um sinn. Málssækjendur halda því fram að hið nýja fyrirtæki myndi hafa tuttugu og sjö prósenta markaðshlutdeild þegar kæmi að stærri kvikmyndum. Varnaraðilar bentu á móti á nýlega innkomu stórfyrirtækjanna Apple og Amazon á kvikmyndamarkaðinn. Það er ríkissaksóknari Kaliforníuríkis, Rob Bonta, sem fer fyrir málsókninni en ríkissaksóknararnir tólf voru allir kjörnir fyrir hönd Demókrataflokksins. Fyrirkomulagið í Bandaríkjunum er gjörólíkt því sem tíðkast hér á Íslandi þar sem faglega er ráðið í stöðu ríkissaksóknara. Bonta hefur sagst vonsvikinn með að ekki hafi verið hægt að fá ríkissaksóknara úr hópi Repúblikana til að taka þátt. Sagðist hann vona að það væri ekki vegna tangarhalds Trump forseta á flokknum. Flokkslínur ættu ekki að vefjast fyrir mönnum þegar kæmi að samkeppnisrétti. Haft er eftir ríkissaksóknara Washington-ríkis að það hafi komið honum á óvart hve margir umbjóðenda hans hafi haft samband við skrifstofu hans til að lýsa yfir áhyggjum af samrunanum. Málið er höfðað út frá bandarískum samkeppnislögum. Í málflutningi kemur fram að samruninn muni gera úti um samkeppni í Hollywood og leiða til minna framboðs fyrir neytendur þegar kemur að kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þá valdi mögulegar verðhækkanir einnig áhyggjum. Í umræðuna hafa einnig blandast áhyggjur af stöðu fjölmiðlunar en með samrunanum myndu tvær af stærstu fréttastöðvum Bandaríkjanna, CNN og CBS, færast undir sama eignarhald. Lýst hefur verið áhyggjum af því að þetta muni leiða til fábreyttari fréttaflutnings. Málaferlin stefna samrunanum í hættu; frestist hann fram yfir 30. september þarf Paramount að reiða af hendi hærri upphæð til hluthafa Warner Bros fyrir hvern dag fram yfir það. Gagnrýni hefur komið fram á að málið sé aðeins hafið til að tefja fyrir samrunanum en málssækjendur hafa tekið fyrir það og hafa á móti bent á mikinn áhuga almennings á málinu.
Hollywood Bandaríkin Samkeppnismál Streymisveitur Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira