Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Mannréttindasamtök hafa kært Gianni Infantino, forseta FIFA, til Alþjóðaólympíunefndarinnar vegna tengsla hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 14.7.2026 20:30
Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Annað stórmótið í röð mætast Frakkar og Spánverjar í undanúrslitum. Spánn hafði betur á EM 2024 en Frakkland hyggur á hefndir í kvöld. Fótbolti 14.7.2026 18:30
„Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Spænski kantmaðurinn Lamine Yamal hefur lýst undanúrslitaleiknum á HM gegn Frakklandi í kvöld sem „mikilvægasta leiknum“ á ferli sínum. Fótbolti 14.7.2026 17:02
Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu Eftir að hafa glímt við veikindi er Declan Rice tilbúinn í slaginn fyrir leik Englands og Argentínu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins annað kvöld. Fótbolti 14. júlí 2026 07:32
Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Spennan er að magnast fyrir undanúrslitaleik Englands og Argentínu á heimsmeistaramótinu í fótbolta og nú vitum við í hvernig búningum liðin spila í þessum risaleik á miðvikudagskvöldið. Argentínumenn vildu og fengu að spila í lukkubúningi sínum. Fótbolti 13. júlí 2026 23:32
Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Suður-afríska lögreglan hefur hafið rannsókn eftir að HM-leikmaðurinn Jayden Adams fannst látinn í húsi í Höfðaborg um helgina. Fótbolti 13. júlí 2026 20:32
Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Stærsta stjarna norska karlalandsliðsins sást hvergi þegar hetjurnar voru hylltar af mannhafi á Hallartorginu í Osló í kvöld. Fótbolti 13. júlí 2026 20:23
Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Slaven Bilic hefur verið ráðinn þjálfari króatíska fótboltalandsliðsins. Þetta er í annað sinn sem hann stýrir því. Fótbolti 13. júlí 2026 19:30
Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Norski framherjinn Erling Braut Haaland tók sín fyrstu skref á norskri grund á sérstakan hátt en norska landsliðið er nú lent heima í Noregi. Það sem bíður landsliðshetjanna er áheyrn hjá konungsfjölskyldunni og svo mikil gleði með norsku þjóðinni í miðborg Osló. Fótbolti 13. júlí 2026 17:51
Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Hollenski fótboltadómarinn Rob Dieperink, sem átti að vera VAR-dómari á HM en var vikið úr starfi fyrir mótið vegna ásakana um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, er látinn, 38 ára að aldri. Þetta staðfestir hollenska knattspyrnusambandið. Fótbolti 13. júlí 2026 17:31
Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ Karlalandslið Noregs í fótbolta er á leiðinni heim til Noregs eftir HM-æintýri sitt og Norðmenn fylgjast spenntir með því ætlunin er að hylla hetjunar á eftirminnilegan máta í Osló í kvöld. Fótbolti 13. júlí 2026 16:45
Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu. Erlent 13. júlí 2026 14:40
Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fifa segir að boltinn hafi ekki snert myndavélavír í aðdraganda fyrra marks Englands gegn Noregi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins vegna þess að myndavélin hreyfðist ekki. Ef boltinn hefði farið í vírinn hefði markið verið dæmt ógilt. Fótbolti 13. júlí 2026 13:00
Langar að taka pásu frá landsliðinu Thibaut Courtois, markmaður Belgíu, íhugar að taka sér pásu frá landsliðinu. Hann þurfti að fara meiddur af velli þegar Spánn sló út Belgíu í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 13. júlí 2026 12:31
Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Gianni Infantino, forseti FIFA, er spenntur fyrir því að fjölga þátttökuliðum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í 64 lið. Hann segir að HM þurfi að vera fyrir allan heiminn. Fótbolti 13. júlí 2026 09:30
Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Enska landsliðið hefur flogið mest af öllum liðum á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Aukin ferðalög fylgja því að halda mótið í þremur löndum. Fótbolti 13. júlí 2026 08:32
Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Stale Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, er stoltur af frammistöðu síns liðs á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Hann getur nú litið til baka á sumarið með bros á vör. Fótbolti 13. júlí 2026 08:02
Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Lena Selnes, unnusta norska landsliðsframherjans Alexanders Sörloth, hefur nú birt hluta af þeim hatursfullu skilaboðum sem hún fékk send eftir að Noregur féll úr leik í 8-liða úrslitum á HM í fótbolta. Fótbolti 13. júlí 2026 07:02
Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fjögur efstu lið heimslista FIFA standa nú eftir á HM í fótbolta og er þetta í fyrsta sinn sem að akkúrat fjögur efstu lið listans standa eftir í undanúrslitum mótsins. Fótbolti 12. júlí 2026 23:00
Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Marcelo Bielsa hætti strax sem landsliðsþjálfari Úrúgvæ og kenndi sjálfum sér um eftir að liðið féll úr leik á HM karla í fótbolta. Nú er arftaki hans fundinn. Fótbolti 12. júlí 2026 22:32
Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Breska blaðið The Times fullyrðir að af 18 meðlimum aganefndar FIFA hafi aðeins formaðurinn komið að ákvörðuninni um að gera Folarin Balogun kleift að spila áfram á HM, þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í 32-liða úrslitunum. Fótbolti 12. júlí 2026 21:34
Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Eftir að hafa fallið úr leik í 32-liða úrslitum á HM í fótbolta, með sárgrætilegu 3-2 tapi gegn Belgum í framlengdum leik, hefur allt þjálfarateymi Senegals nú verið rekið. Fótbolti 12. júlí 2026 18:46
„Mikil saga og mikill sársauki“ Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Fótbolti 12. júlí 2026 15:16
Sýður á Svisslendingum Svisslendingar eru allt annað en ánægðir eftir að hafa fallið úr leik fyrir Argentínu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. Rautt spjald Breel Embolo skilur eftir óbragði í munni þeirra. Fótbolti 12. júlí 2026 14:32