Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2026 13:46 Villa Certosa, sumarsetur Silvio Berlusconi á Sardiníu árið 2004. Þyrlan sem sést sveima yfir setrinu flutti Tony Blair, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, og fjölskyldu þangað. Blair og Berlusconi voru miklir mátar. Vísir/EPA Fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Katar er sagður hafa fest kaup á sveitasetri Silvio Berlusconi heitins á eyjunni Sardiníu. Setrið var eitt af nokkrum þar sem þáverandi forsætisráðherra Ítalíu hélt alræmdar „bunga bunga“-veislur sínar.
Fjölskylda Berlusconi setti Villa Certosa á sölu fyrir um ári. Ítalska blaðið La Repubblica heldur því fram að Hamad bin Jassim bin Jabr al-Thani, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Katars, hafi greitt 350 milljónir evra fyrir setrið, jafnvirði um 50,5 milljarða íslenskra króna. Evrópska blaðið Politico segir að villan bætist í stækkandi eignasafn katörsku konungsfjölskyldunnar á Sardiníu en hún hefur undanfarið fjárfest þar í lúxusferðaþjónustu og sjúkrahúsi. Villa Certosa var sumaraðsetur Berlusconi þegar hann var forsætisráðherra Ítalíu. Þar tók hann meðal annars á móti erlendum þjóðarleiðtogum. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra Íslands, fór í einkaheimsókn til Berlusconi á Sardiníu árið 2022, að því er Morgunblaðið sagði frá á sínum tíma. Sumarsetrið var á meðal nokkurra lúxusheimila Berlusconi þar sem hann hélt svallveislur sem kenndar voru við „bunga bunga“. Á þeim samkomum fengu stúlkur undir lögaldri greitt fyrir kynferðislegar athafnir fyrir Berlusconi og félaga hans. Berlusconi var sjálfur sýknaður af ákærum vegna veislnanna en þó ekki áður en uppljóstranir um þær felldu hann úr forsætisráðherrastóli. Hann lést árið 2023.
Ítalía Katar Fasteignamarkaður Mest lesið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Neytendur Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira