Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Bjarki Sigurðsson skrifar 18. júlí 2026 16:45 Guðmundur Valur Guðmundsson er framkvæmdarstjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar. Vísir/Lýður Valberg Vegagerðin vinnur að því að útrýma einbreiðum brúm á Íslandi. Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni segir þónokkur verkefni í bígerð, sem sum stytta hringveginn töluvert.
Þegar ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð fyrr í sumar fækkaði einbreiðum brúm á hringveginum úr 29 í 26. Um aldamótin voru þær um hundrað talsins. Markmiðið er að útrýma þeim að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra á þróunarsviði Vegagerðarinnar. „Það eru í bígerð nokkur verkefni þar sem er verið að fækka einbreiðum brúm á hringveginum. Eitt er á Berufjarðarströnd þar sem er smábrú sem verður skipt út á þessu ári eða næsta. Svo eins við Reyðarfjörð. Þar er í undirbúningi verkefni um færslu vegar og nýja brú,“ segir Guðmundur. Í heildina eru yfir sex hundruð einbreiðar brýr á Íslandi. Við forgangsröðun endurnýjunar er litið til ýmissa þátta, til að mynda umferðarþunga, slysafjölda, ástands og aldurs. Ný brú þýðir ekki endilega að hringvegurinn styttist líkt og þegar brúin yfir Hornafjarðarfljót var opnuð. „Stundum er veglínan góð og engin áform um að færa veginn sem slíkan. Það eru nokkur dæmi um slík verkefni. Á undanförnum árum höfum við endurnýjað fjölmargar brýr á Suðurlandi til dæmis á Sólheimasandi, við Hverfisfljót og Núpsvötn, þar sem var verið að byggja brú í sömu veglínu eða rétt til hliðar. Svo erum við með verkefni eins og í Hornafirði þar sem er verið að breyta vegakerfinu og stytta vegalengdir. Það eru umfangsmeiri verkefni. Í staðinn fyrir að byggja eina brú ertu að byggja stóran veg líka. Þannig verkefni eru líka eins og í kringum Skaftafell. Þar er stefnt að því að stytta hringveginn um fimm eða sex kílómetra. Í því verkefni eru fjórar einbreiðar brýr á hringveginum,“ segir Guðmundur.
Samgöngumál Umferðaröryggi Umferð Vegagerð Múlaþing Fjarðabyggð Tengdar fréttir Kostar rúma 13 milljarða að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 Alls eru 39 einbreiðar brýr á hringveginum. 22. febrúar 2016 19:26 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira
Kostar rúma 13 milljarða að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 Alls eru 39 einbreiðar brýr á hringveginum. 22. febrúar 2016 19:26