Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2026 14:01 Maðurinn er búsettur í þýsku höfuðborginni Berlín. Roberto Conte Saksóknaraembættið í Berlín hefur gefið út ákæru á hendur 68 ára Þjóðverja sem grunaður er um að hafa byrlað fjölda kvenna svefnlyf í bland við áfengi, nauðgað þeim á meðan þær voru meðvitundarlausar og tekið verknaðinn upp á myndband.
Die Welt greinir frá ákærunni. Ákæran nær til 22 brota gegn 14 konum. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir sérstaklega grófa nauðgun og hættulega líkamsárás. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá byrjun mars og hefur ekki tjáð sig um sakargiftirnar. Vissu ekki af brotunum fyrr en lögregla bankaði upp á Samkvæmt ákærunni kynntist hann konunum í gegnum stefnumótaforrit á netinu. Hann á að hafa byrlað þeim blöndu af mismunandi svefnlyfjum og áfengi þannig að þær misstu meðvitund áður en hann braut gegn þeim kynferðislega. Konurnar vissu samkvæmt saksóknara ekkert um brotin fyrr en lögregla fann myndbandsupptökur sem sýndu hvað hafði gerst og borið var kennsl á konurnar. Rannsókn málsins hófst eftir ábendingu frá lögreglu í Verden í Neðra-Saxlandi. Þar hafði lögregla annan mann til rannsóknar vegna sambærilegra grunsemda en sá maður er nú látinn. Talið er að hann hafi verið í samskiptum við hinn ákærða. Við húsleit á heimili Berlínarmannsins fannst fjöldi myndbanda af meintum kynferðisbrotum. Rannsakendur telja að brotaþolar kunni að vera mun fleiri en 14 eða alls 58. Tíu þeirra hafa enn ekki verið auðkenndir og rannsókn stendur yfir á málum 30 kvenna til viðbótar. Sum mál fyrnd Saksóknari segir að rannsókn á einu máli, þar sem kona kvaðst hafa verið nauðgað ítrekað á árunum 2010 til 2014, hafi verið felld niður vegna fyrningar. Ekki hafi tekist að sanna með fullnægjandi hætti að ofbeldi hafi verið beitt og því hafi skemmri fyrningarfrestur gilt. Saksóknari gerir þá kröfu að manninum verði gert að sæta öryggisgæslu að lokinni fangelsisvist verði hann sakfelldur. Alls ekkert einsdæmi Málið er fjarri því að vera einsdæmi. Í síðustu viku var 32 ára gamall maður frá Kína dæmdur í fimm ára fangelsi í sambærilegu máli í Berlín fyrir að hafa aðstoðað við og hvatt til alvarlegrar nauðgunar og alvarlegs kynferðisofbeldis. Dómarar í málinu voru sannfærðir um að Kínverjinn tilheyrði samfélagi þar sem nokkrir menn skiptust á upplýsingum um kynferðisbrot gegn konum sem hafði verið byrlað ólyfjan. Maðurinn starfaði sem læknir og notaði sérþekkingu sína til að gefa ráð um svæfingu fórnarlamba spjallfélaga sinna. „Kynferðisbrot eru ekki lengur framin hljóðlega og leynilega, heldur eru þau birt opinberlega og fagnað á netinu,“ sagði Thilo Bartl, dómari í málinu. Gera yrði ráð fyrir að brot sem þessi væru útbreiddari en fólk teldi og dæmi um kvenfyrirlitningu þar sem konur væru niðurlægðar og litið á sem hluti. Vísaði dómarinn til nýlegra mála í München og Bretlandi varðandi raðnauðganir á konum. Nemandi frá Kína var dæmdur í rúmlega ellefu ára fangelsi í apríl fyrir að byrla kærustu sinni, nauðga henni og taka brot sín upp á myndband.
Kynferðisofbeldi Þýskaland Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira