Ljóðrænt hótel á Akureyri Bjarki Sigurðsson skrifar 14. júlí 2026 20:00 Magnea Þórey Hjálmarsdóttir er eigandi og hótelstjóri Skálds. Hún er gríðarlega reynslumikil í hótelbransanum. Vísir/Bjarki Íslensk ljóðlist er í hávegum höfð á nýju hóteli í miðbæ Akureyrar. Handskrifuð ljóð og bréf frá Davíði Stefánssyni prýða veggi hótelsins.
Fyrr í sumar var hótelið Skáld opnað við Hafnarstræti á Akureyri. Skáld er hluti af Curio-línu Hilton-hótela og er íslensk ljóðhefð rauður þráður í hönnun hótelsins og þeirri upplifun sem hótelið býður gestum upp á. „Það eru ekkert nema ljóðabækur á öllu hótelinu, herbergjunum og íbúðunum hjá okkur. Við erum með samsetta fjölskyldu af þrettán samtímaljóðskáldum. Þau eru á öllum aldri. Við getum glaðst yfir arfinum og öllum merkilegu skáldunum sem hafa yfirgefið okkur en síðast en ekki síst hampað samtímaljóðskáldum,“ segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, eigandi og hótelstjóri Skálds. Innlit á hótelið má sjá í klippunni hér fyrir neðan. Á hótelinu eru 71 herbergi og fimmtán íbúðir með fallegu útsýni yfir Eyjafjörðinn. Veitingastaður hótelsins heitir Abbalabbalá eftir ljóði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. „Á leiðinni inn á veitingastaðinn sérðu veggfóður með handskrifuðum bréfum og ljóðum frá Davíð. Við fengum þau frá ættingjum hans. Við létum betrekkja þau á veggina, enda gullfalleg skrift og fallegur boðskapur,“ segir Magnea. Davíð er einmitt úr Eyjafirði en mörg af þekktustu ljóðskáldum Íslandssögunnar tengjast svæðinu sterkum böndum, þar á meðal Jónas Hallgrímsson sem var fæddur og uppalinn í Öxnadal og Matthías Jochumsson sem bjó um árabil á Akureyri og dvaldi þar síðustu æviár sín. „Okkur fannst þetta vanta inn í söguna okkar þegar við erum að segja útlendingum frá því sem einkennir Íslendinga og því sem við höfum erft og unnið með. Það á jafn vel við í dag og fyrir löngu síðan,“ segir Magnea.
Ljóðlist Hótel á Íslandi Ferðaþjónusta Akureyri Menning Veitingastaðir Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira