Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. júní 2026 07:00 Læknarnir Telma Jóhannesdóttir og Ingi Pétursson giftu sig 13. júní. María Rúnarsdóttir „Dagurinn var algjör draumur. Við fengum náttúrulega þetta geðveika veður sem skaðaði ekki,“ segir Telma Jóhannesdóttir sem giftist ástinni sinni Inga Péturssyni 13. júní síðastliðinn við hátíðlega athöfn í miðbæ Reykjavíkur. Parið er búið að vera saman í sjö ár, starfa bæði sem læknar og kynntust á fyrsta árinu í náminu.
Dagurinn var draumi líkastur hjá hjónakornunum en blaðamaður ræddi við Telmu um hann, undirbúninginn, kjólinn og fleira til. Telma og Ingi skemmtu sér konunglega í brúðkaupsveislunni í Gamla Bíói.Aðsend Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Ingi bað mín undir Brooklyn brúnni í New York í ágúst 2022. Við sátum tvö að kvöldi til, með Manhattan skyline-ið fyrir framan okkur, drekkandi síða bjóra í dós og Ingi fór á skeljarnar. Ég bjóst engan veginn við bónorðinu en Ingi vill meina að hann hafi verið búin að hugsa þetta heillengi og hafi beðið eftir að geta gert þetta á þessum stað. Hjúin trúlofuðu sig á rómantísku og afslöppuðu kvöldi í New York.María Rúnarsdóttir Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Það er eitt og hálft ár síðan að við bókuðum kirkju og sal, en við fórum að plana hluti af alvöru eftir að við kláruðum síðasta lokaprófið í náminu síðastliðið vor. Telma og Ingi byrjuðu að skipuleggja brúðkaupið af fullum krafti eftir útskrift.Aðsend Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Hann var algjör draumur. Við fengum náttúrulega þetta geðveika veður sem skaðaði ekki. Við byrjuðum á að vakna með dóttur okkar og eiga smá fjölskyldustund saman heima og drifum okkur svo að skreyta salinn með bestu vinkonum mínum. Svo skiptum við liði, það var bröns og GMT, eða gera sig til, heima hjá mér með mínu nánasta fólki. Telma gerði sig til með bestu vinkonunum.Aðsend Á sama tíma tók Ingi við bestu vinum sínum heima hjá mömmu minni en þeir eyddu nú hvað mestum tíma í heita pottinum í góða veðrinu og svona tíu mínútum í að gera sig til. Það fór einhver aðeins meiri tími í að gera sig til hjá okkur stelpunum. Brúðarbílinn sem frændi minn á sótti svo mig og pabba minn og keyrði okkur í Dómkirkjuna. Við tók athöfnin, myndataka, skrúðganga yfir í Gamla Bíó og svo þessi tryllta veisla í Gamla Bíói. Hjónin gengu með fólkinu sínu úr Dómkirkjunni í Gamla bíó.Aðsend Hvar hélduð þið brúðkaup? Var erfitt að ákveða staðsetningu? Við vissum bæði að við vildum vera á höfuðborgarsvæðinu til að tryggja að allir sem við vildum hafa í brúðkaupinu gætu örugglega verið með. Við hugsuðum bæði fyrst um Dómkirkjuna og það kom í rauninni aldrei neitt annað til greina, svo ég get nú ekki sagt að það hafi verið erfitt. Staðsetningin í Gamla Bíói var í rauninni líka mjög einföld, mér finnst þetta einn fallegasti salurinn í Reykjavík og staðsetningin er auðvitað frábær, svo var hann blessunarlega laus 13. júní. Gamla bíó er einstaklega glæsilegur veislusalur og hjónin tóku fallegan fyrsta dans.Aðsend Voruð þið sammála í skipulaginu? Við vorum nú frekar heppin með það að vera mjög samstíga í þessu, einstaklega lítill ágreiningur sem kom upp. Hjónin voru einstaklega samstíga í skipulaginu.María Rúnarsdóttir Hvað fannst ykkur mikilvægast? Mér fannst mikilvægast að við skipulögðum nánast hvert einasta atriði saman, sem gerði undirbúninginn svo ótrúlega skemmtilegan. Það var í raun date night á hverju kvöldi að plana brúðkaupið okkar sem það gerði það að verkum að þetta varð að draumabrúðkaupi okkar beggja. Það var mikið fjör hjá hjónunum.Aðsend Hvaðan sóttuð þið innblástur? Við vorum bæði með draum um að hafa þetta svolítið „grand“ án þess að missa algjöra stjórn á kostnaðinum. Þannig við vönduðum okkur mikið að gera allar skreytingar sjálf. Þar komu samfélagsmiðlarnir Pinterest og TikTok einstaklega sterk inn, sérstaklega við að plana litlu smáatriðin. Annars sóttum við mikinn innblástur úr fyrri brúðkaupum sem við höfum farið í og fengum góð ráð frá vinum og fjölskyldumeðlimum. Glæsileg og falleg!María Rúnarsdóttir Hvað stendur upp úr? Það er mjög væmið að segja það en held að það standi helst upp úr hvað við eigum fáránlega skemmtilega vini og fjölskyldu sem gerðu kvöldið og partýið sturlað. En Frikki Dór var nú frekar „sick“. Frikki Dór tryllti lýðinn.Aðsend Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Bestu vinir okkar og kollegar úr læknadeild sáu um veislustjórn, þau Herdís og Hafþór og stóðu sig eins og hetjur. Helgi Björns söng í kirkjunni og fullkomnaði athöfnina, Friðrik Dór gerði allt vitlaust í veislunni og Bjarni Kristbjörnsson var DJ og hélt uppi geðveikri stemningu þangað til við vorum rekin út við lokun. Brúðhjón og bestu vinir.Aðsend Þar að auki voru yndislegar ræður, myndbönd og nokkrir leikir í gegnum kvöldið sem voru mjög skemmtilegir. Gestir dönsuðu þangað til salurinn lokaði. Aðsend Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Það er stórmerkilegt hvað allt sem er titlað brúðkaups- eitthvað er umtalsvert dýrara en aðrir sambærilegir hlutir. Nei nei, ætli það hafi ekki verið hversu erfitt það var að plana sætaskipan. Það er kostnaðarsamt að halda brúðkaup og erfitt að velja sætaskipan en það skyggir þó ekki á draumadaginn.Aðsend Hvað voru margir gestir? Það voru nákvæmlega 114 gestir sem mættu. Hjónin fögnuðu með 114 bestu vinum sínum og fjölskyldu.Aðsend Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það? Ég velti þessu mikið fyrir mér með kjólinn, ég hafði aldrei séð mig fyrir mér í stórum brúðarkjól og vissi að ég vildi eitthvað hógvært og sígilt. Ég skoðaði mikið á Pinterest og öðrum samfélagsmiðlum, fór svo í mátun hjá Loforð og fann lukkulega kjól sem var nákvæmlega eins og ég hafði séð fyrir mér. Hann var líka einmitt á útsölu og passaði á mig eins og hann væri sniðinn að mér, þannig ég keypti hann á staðnum. Það var reyndar fyrir sex mánuðum síðan þannig ég þurfti bara að passa að halda mér í sama formi og þá myndi þetta sleppa. Ingi keypti svo sérsaumuð jakkaföt í útskriftarferðinni okkar til Taílands í fyrra og notaði þau ekki fyrr en nú. Telma fann kjólinn í Loforði en Ingi lét sauma á sig jakkaföt í Taílandi.Aðsend Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Mitt helsta ráð er að hámarka tímann yfir daginn til að finna gæðastundir með fólkinu sínu, til dæmis að eyða góðum tíma með sínum nánustu að gera sig til. Líka reyna að skipuleggja inn í dagskránna í veislunni tíma fyrir brúðhjónin til að spjalla við sem flesta gesti, því það er svo mikið að gera og mann langar að eyða tíma með öllum en það er oft knappur tími. Telma hvetur fólk til að finna gæðastundir með fólkinu sínu yfir brúðkaupsdaginn. Aðsend Ætlið þið í brúðkaupsferð? Það er svolítið vesen að púsla saman fríi sem tveir nýútskrifaðir læknar, þannig við förum í stutta brúðkaupsferð til Prag núna en stefnum á að fara svo til Ítalíu í haust í aðeins lengra frí saman. Hjónin skelltu sér í helgarferð til Prag og ætla í lengri brúðkaupsferð til Ítalíu í haust.Aðsend
Brúðkaup Tímamót Ástin og lífið Reykjavík Bandaríkin Mest lesið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Lífið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Hilmir Snær stígur einn á svið Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Fleiri fréttir GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Sjá meira