Lífið

Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ólafía Þórunn og Thomas Bojanowski eignuðust sitt þriðja barn í síðasta mánuði.
Ólafía Þórunn og Thomas Bojanowski eignuðust sitt þriðja barn í síðasta mánuði.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, fyrrverandi atvinnukylfingur og eigandi barnafataverslunarinnar Olala, og Thomas Bojanowski eignuðust stúlku í lok október. Um er að ræða þeirra þriðja barn en fyrir eiga þau tvo syni sem eru fæddir 2021 og 2024.

Ólafía Þórunn greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum um helgina. Þar birti hún mynd af stúlkunni á tánum í fallegum prjónafötum.

„26. október 2026 💕 Litla prinsessan er komin til okkar! 🥰“ skrifaði hún við færsluna.

Ólafía Þórunn og Thomas hafa verið saman um árabil og giftu sig í Fríkirkjunni árið 2024.

Ólafía var kjörin Íþróttamaður ársins á Íslandi 2017 eftir að hafa náð besta árangri íslensks kylfings sem atvinnumaður þegar hún komst inn á LPGA-mótaröðina. Hún varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og varð Evrópumeistari í golfi í blandaðri liðakeppni ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur, Birgi Leifi Hafþórssyni og Axel Bóassyni 2018.

Hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna og lagði keppniskylfurnar á hilluna árið 2022 eftir farsælan feril.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.