Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar 23. júní 2026 08:02 Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga. Bak við hverja útskrift stendur skólasamfélag sem hefur skapað nemendum tækifæri til að vaxa, læra og undirbúa sig fyrir framtíðina. Á Akureyri eru þrjár ríkisreknar menntastofnanir sem gegna lykilhlutverki í íslensku menntakerfi. Þær mennta fólk sem síðar sinnir heilbrigðisþjónustu, byggir upp atvinnulíf og skapar verðmæti um land allt. Þær eru mikilvægar fyrir Norðurland en ekki síður fyrir landið í heild. Það er því ástæða til að staldra við og huga að stöðu þessara stofnana. Þrátt fyrir ólíkar áskoranir eiga þær það sameiginlegt að eftirspurn eftir námi og þjónustu þeirra er meiri en kerfið ræður við. Á sama tíma standa þær frammi fyrir verkefnum sem kalla á skýrar ákvarðanir og aukinn stuðning af hálfu ríkisins. Mikill áhugi á heilbrigðisnámi Háskólinn á Akureyri hefur vaxið hratt á undanförnum árum og umsóknir í skólann hafa aldrei verið fleiri. Sérstaklega vekur athygli gífurleg aðsókn í hjúkrunarfræði þar sem vel yfir 300 einstaklingar sóttu um nám í vor en aðeins 75 stúdentar geta haldið áfram eftir fyrstu önn. Á sama tíma hefur uppbygging hermiseturs, sem er lykilþáttur í verklegri kennslu heilbrigðisgreina, ekki gengið nægilega hratt fyrir sig sem takmarkar möguleika skólans til að taka við fleiri nemendum. Með frekari uppbyggingu væri hægt að fjölga nemendum og mæta betur þeirri miklu þörf sem er fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Það skiptir miklu fyrir allt landið, en ekki síst fyrir landsbyggðina þar sem reynslan sýnir að þeir sem mennta sig utan höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að starfa þar að námi loknu. Fjármögnun verður að fylgja verkefnum Framhaldsskólarnir á Akureyri standa einnig frammi fyrir verulegum áskorunum. Undanfarin ár hafa stjórnendur bent á að fjármögnun standi ekki undir raunverulegum rekstri skólanna og nú blasir við krafa um frekari niðurskurð. Slík staða er fordæmalaus og vekur áhyggjur um framtíð námsframboðs og þjónustu við nemendur. Hætt er við að áframhaldandi skerðingar á framlögum til Menntaskólans á Akureyri leiði til fækkunar námsgreina og þrengra námsframboðs. Það myndi ekki aðeins bitna á nemendum á Akureyri heldur einnig fjölmörgum ungmennum úr nágrannasveitarfélögum sem sækja þangað nám. Fjölbreytt námsframboð er forsenda þess að ungt fólk hafi raunverulegt val um menntun óháð búsetu. Iðnmenntun sem samfélagið kallar eftir Verkmenntaskólinn á Akureyri býr við aðra áskorun. Þar hefur löngu verið kallað eftir viðbyggingu til að mæta aukinni eftirspurn eftir verknámi. Framkvæmdin hefur hins vegar dregist um of og afleiðingin er sú að nemendum er vísað frá námi á sama tíma og íslenskt atvinnulíf kallar eftir fleira iðnmenntuðu fólki. Við getum ekki leyft okkur að hafna fólki sem vill afla sér þeirrar menntunar sem samfélagið þarf á að halda. Fjárfesting í framtíð landsins Þessar þrjár áskoranir eru ólíkar en boðskapurinn er sá sami. Menntastofnanirnar á Akureyri eru tilbúnar til að leggja meira af mörkum fyrir samfélagið, en þær þurfa að fá svigrúm til þess. Fjárfesting í menntun á Akureyri er ekki útgjaldaliður heldur fjárfesting í heilbrigðiskerfi, atvinnulífi og framtíð Íslands. Nú er komið að ríkinu að sýna í verki að markmið um jafnt aðgengi að menntun, öfluga uppbyggingu um land allt og eflingu landsbyggðarinnar séu meira en orð á blaði. Með því að tryggja þessum stofnunum nauðsynlegt fjármagn og aðstöðu er ekki aðeins verið að styrkja Akureyri heldur að fjárfesta í framtíð landsins alls. Það er hagsmunamál okkar allra að þær geti sinnt hlutverki sínu af fullum krafti. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Samfélagsmiðlar Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira