Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar 30. október 2026 08:46 Á Loftslagsdeginum í gær voru loftslagsbreytingar og öryggi í brennidepli. Dagskráin spannaði þjóðaröryggi, orkuöryggi, fæðuöryggi og samfélagsöryggi. Þetta eru brýn viðfangsefni sem eiga fullt erindi við okkur öll. Skógar og skógrækt er tengjast mörgum þeirra áskorana og lausna sem rætt var um og ættu að fá meira vægi í umræðunni. Með ljóstillífun taka tré upp koltvísýring úr andrúmsloftinu og nýta orku sólar til vaxtar. Þannig binst kolefni í viði, rótum og öðrum hlutum trjánna. En framlag skóga til loftslagsmála og öryggis samfélagsins nær langt út fyrir kolefnisbindinguna eina. Ég tel að við þurfum að líta á skógrækt sem langtímafjárfestingu í þjóðaröryggi. Samfélag sem verndar jarðveg sinn, styrkir eigin framleiðslugetu og byggir upp endurnýjanlegar auðlindir stendur betur að vígi þegar á reynir. Vel skipulögð skógrækt getur lagt sitt af mörkum á öllum þessum sviðum. Fæðuöryggi Skógar, skjóllundir og skjólbelti geta varið jarðveg gegn vind- og vatnsrofi og bætt skilyrði fyrir landbúnað. Skjól fyrir ræktun og búfé er áþreifanlegt framlag til framleiðslugetu landsins. Skipuleggja þarf skógrækt og matvælaframleiðslu saman. Skógurinn getur líka verið matarkista — bæði fyrir menn og dýr. Þar má finna æta sveppi, nýta safa, síróp, ber og jurtir. Slík nýting getur aukið fjölbreytni staðbundinnar fæðuöflunar og kennt okkur að þekkja og nýta það sem landið gefur. Í samfélagsskógum geta börn og fullorðnir lært saman um ætar tegundir, ábyrga uppskeru og leiðina frá náttúru til matarborðs. Innlend auðlind styrkir viðnámsþrótt Með uppbyggingu skógarauðlindar getum við aukið möguleika okkar á innlendri viðarframleiðslu og úrvinnslu. Ef við viljum geta nýtt innlent hráefni þegar aðflutningar verða ótryggir, þarf framleiðslugetan að vera til staðar. Hana verður að byggja upp með samfellu. Langur vaxtartími skóga er því sterk rök fyrir því að hefjast handa núna. Ákvarðanir dagsins í dag ráða því hvaða auðlindir og valkosti komandi kynslóðir hafa. Skógurinn er líka orka Á Loftslagsdeginum var töluvert rætt um orkuöryggi og slökkt á ljósunum til að beina athygli okkar að mikilvægi orkunnar. Skógurinn er orka. Eldiviður, viðarkurl og viðarkögglar, oft nefndir pellet, er hægt að nýta til hitunar — einnig á svæðum þar sem ekki er jarðhiti. Með ábyrgri nýtingu skógarauðlindar og afgangsefna úr viðarvinnslu getum við kannað fleiri leiðir til innlendrar orkuframleiðslu. Fjölbreyttir orkugjafar geta styrkt viðbúnað og komið í veg fyrir að við séum háð fáum lausnum og innflutningi. Orka úr viði er ekki sjálfkrafa kolefnishlutlaus. Meta þarf uppruna hráefnis, endurvöxt skóga, vinnslu, flutninga og hvaða orkugjafa hún kemur í staðinn fyrir. Hér á landi þarf jafnframt að skoða hvar slík nýting getur bætt við þá kosti sem jarðhiti og raforka veita þegar. Frá skógi til loftslagslausna Loftslagsframlag skóga nær einnig til þess hvernig afurðir þeirra eru nýttar. Viður í endingargóðum mannvirkjum getur varðveitt kolefni og komið í stað losunarfrekari efna, að því gefnu að hráefnisöflun og nýting séu sjálfbær. Þannig tengjast skógrækt, byggingariðnaður og loftslagsaðgerðir. Lífkol, sem framleiða má úr viðarleifum með hitun við takmarkað súrefni, eru dæmi um frekari nýtingarmöguleika. Rannsóknir á notkun þeirra í steypu sýna möguleika á að geyma kolefni í byggingarefninu og minnka kolefnisspor þess. Ávinningurinn ræðst þó af framleiðsluaðferð, samsetningu og eiginleikum steypunnar og þarf að meta yfir lífsferil hennar. Einnig er verið að rannsaka lífkol sem fóðuríblöndun til að draga úr metanlosun nautgripa. Þar eru niðurstöður enn misjafnar og því rétt að tala um rannsóknar- og þróunartækifæri fremur en tryggðan ávinning. Einnig hafa viðarkol verið rannsökuð sem íblöndun í fiskafóður með það að markmiði að bæta fóðurnýtingu og heilbrigði eldisfisks, sem sýnir enn eina mögulega tengingu skógarafurða við matvælaframleiðslu. Ábyrg ræktun og langtímaumhirða Skógarnir sjálfir þurfa líka að þola breyttar aðstæður. Umhirða, fjölbreytni, vöktun og viðbúnaður vegna gróðurelda og skaðvalda eru hluti af því að varðveita auðlindina. Árangurinn verður að meta út frá því hvernig skógarnir lifa, þroskast og þjóna samfélaginu. Vernd skóga, endurheimt birkiskóga, ræktun nýrra skóga og endurheimt annarra vistkerfa þurfa að vinna saman. Samhliða verður að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda. Samfélagsskógar fyrir komandi kynslóðir Skógur getur verið sameiginlegt verkefni heils samfélags. Í samfélagsskógi geta börn, fjölskyldur, skólar og félagasamtök komið saman, gróðursett, hlúð að trjánum og fylgst með skóginum vaxa. Þar skapast vettvangur fyrir nám, leik, útivist og samveru. Við þurfum að gefa börnum tækifæri til að mynda eigin tengsl við náttúruna. Að setja plöntu í mold, koma aftur að henni og sjá hana vaxa er reynsla sem getur kennt þolinmæði, umhyggju og ábyrgð. Hún gerir loftslagsmálin áþreifanleg og gefur börnum færi á að taka þátt í að móta framtíðina. Fjárfesting í skógrækt Eina erindið á Loftslagsdeginum sem fjallaði sérstaklega um tré og samfélag var frábært erindi um samfélagslegt skógræktarverkefni í Síerra Leóne. Það vakti mig til umhugsunar: Getum við ekki líka horft okkur nær og nýtt lærdóminn hér á Íslandi? Byggjum upp samfélagsskóga þar sem börn tengjast náttúrunni, kynslóðir vinna saman og umhyggja fyrir landi vex. Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skógrækt og landgræðsla Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun