Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir, Helga Tryggvadóttir, Inga Reynisdóttir, Ólöf Kristjana Bjarnadóttir og Þórður Tryggvason skrifa

Bleikur október og bleika slaufan hafa lengi verið tákn vitundarvakningar um brjóstakrabbamein. Átakið byrjaði í Bandaríkjunum á níunda áratug síðustu aldar með því að fræða almenning um brjóstakrabbamein og hvetja konur til að mæta í brjóstaskimun. Átakið þróaðist í alþjóðlegt átak og bleika slaufan varð tákn átaksins í byrjun tíunda áratugarins.

Undanfarin ár hefur tilfellum brjóstakrabbameina á Íslandi fjölgað. Á sama tíma er árangur betri en áður og fleiri læknast af brjóstakrabbameini eða lifa lengur með sjúkdóminn á langvinnu stigi. Engu að síður er brjóstakrabbamein næst algengasta orsök andláta vegna krabbameina hjá konum á Íslandi og því mikilvægt að greina brjóstakrabbameinin snemma.

Brjóstaskimun hjá einkennalausum konum skiptir enn miklu máli

Þrátt fyrir framfarir í meðferð brjóstakrabbameina skiptir brjóstaskimun enn mjög miklu máli. Því fyrr sem brjóstakrabbamein greinist því betri eru horfurnar og oft verður ekki þörf á jafn erfiðri meðferð. Brjóstakrabbamein sem greinast við brjóstaskimun eru almennt minni og af lægra stigi en brjóstakrabbamein sem greinast vegna einkenna (Krabbameinsskrá Íslands).

Þátttaka í brjóstaskimun á Íslandi hefur lengi verið of lág (Talnabrunnur 1.tölublað 2024 Embætti landlæknis) en átaksverkefni hafa verið gerð til að auka þátttökuna og má þar nefna „Skrepp í skimun“ átakið og átaksverkefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja um að ná til kvenna af erlendum uppruna. Mikið framfaraskref var stigið árið 2024 þegar gjald í brjóstaskimun var lækkað og í dag geta konur sem fá boð í brjóstaskimun bókað tíma á Brjóstamiðstöð Landspítalans í Landspítala appinu.

Brjóstaskimun er fyrir konur á aldrinum 40-74 ára, sem finna ekki fyrir einkennum frá brjóstum. Konur eru hvattar til að þreifa brjóstin sín mánaðarlega. Ef einkenna frá brjósti verður vart er mikilvægt að skoða það sérstaklega með klínískri brjóstamyndatöku sem leiðir oft til frekari myndrannsókna, líkamlegrar skoðunar og sýnatöku ef við á.

Nákvæmara meðferðarval fyrir sjúklinga

Meðal þess sem stjórnar meðferðarvali við greiningu brjóstakrabbameins er stærð brjóstakrabbameinsins, hvort meinvörp í eitlum eða fjarmeinvörp séu til staðar, hvernig líffræðilegir eiginleikar krabbameinsins eru auk heilsufar sjúklings. Sífellt er leitast eftir því að fá ítarlegri upplýsingar um eiginleika brjóstakrabbameinsins, aðlaga meðferðarval út frá því og þannig stefna í átt að sífellt einstaklingsmiðaðri meðferð, hvort sem slík meðferð er gefin í læknanlegum tilgangi eða við langvinnu brjóstakrabbameini.

Prosigna prófið, einnig kallað PAM50, er próf sem undanfarin ár hefur verið framkvæmt hjá hópi sjúklinga sem greinast með nýgreint hormónajákvætt brjóstakrabbamein á læknanlegu stigi hér á landi. Prófið gefur áhættumat á fjarmeinvörpum til 10 ára fyrir viðkomandi sjúkling með því að skoða sérstaklega 50 gen sem tengjast brjóstakrabbameinum ásamt stærð krabbameins í skurðaðgerðinni og hvort meinvörp til eitla voru til staðar. Markmiðið er að koma betur auga á þá sjúklinga sem hafa góðar horfur og ættu ekki að þurfa viðbótar krabbameinslyfjameðferð ásamt því að finna sjúklinga með aukna áhættu þar sem gagnsemi krabbameinslyfjameðferðarinnar er meiri. Nýlega birtust fyrstu niðurstöður OPTIMA rannsóknarinnar og gefa þær til kynna lofandi niðurstöður um mikilvægi þessa prófs og verður áhugavert að fylgjast með hvað niðurstöður framtíðarinnar munu sýna (Stein et al JCO ASCO meeting maí 2026).

Samkvæmt spám mun tíðni brjóstakrabbameina á Íslandi aukast á næstu áratugum. Það er mikilvægt að halda í gömul gildi eins og brjóstaskimun samhliða hraðri þróun greininga og meðferða. Við hvetjum konur til að svara kallinu og panta tíma í brjóstaskimun þegar boðið berst samhliða því að leita til heilbrigðisfólks ef vart verður við einkenni frá brjóstum. Breyting í brjósti getur verið eitthvað annað en brjóstakrabbamein en mikilvægt er að greina mein fyrr en seinna því það bætir horfur og minnkar jafnframt þörf á erfiðum lyfjameðferðum og stórum skurðaðgerðum.

Fyrir hönd stjórnar Íslenska brjóstakrabbameinshópsins

  • Anna Kristín Höskuldsdóttir brjóstaskurðlæknir
  • Helga Tryggvadóttir krabbameinslæknir
  • Inga Reynisdóttir náttúrufræðingur
  • Ólöf Kristjana Bjarnadóttir krabbameinslæknir og formaður Íslenska brjóstakrabbameinshópsins
  • Þórður Tryggvason meinafræðingur

Íslenski brjóstakrabbameinshópurinn er hópur fagfólks sem kemur að greiningu og meðferð brjóstakrabbameina á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×