Erlent

Lét Netanjahú heyra það í sím­tali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“

Eiður Þór Árnason skrifar
Trump hefur ítrekað lýst því yfir að samkomulag sé svo gott sem í höfn.
Trump hefur ítrekað lýst því yfir að samkomulag sé svo gott sem í höfn. Getty/Samuel Corum

„Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um nýlega árás Ísraelshers á Líbanon og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið.

Árásin hefur flækt friðarviðræður Íran og Bandaríkjanna en Trump fullyrðir að áfram sé stefnt að því að skrifa undir samkomulag í dag.

Þrír eru sagðir látnir og fimmtán særðir í úthverfum höfuðborgar Líbanon eftir árás Ísraels í dag sem Bandaríkjaforseti segir hafa komið klukkutíma áður en til stóð að undirrita friðarsamkomulag. Þetta kemur fram í frétt Axios

Trump er nú sagður keppast við að bjarga viðræðunum sem voru settar í uppnám með árás Ísraels, að sögn fulltrúa Íran. Íran hefur nú hótað hefndum.

Verði ekki liðið

Ritari æðstu öryggisstofnunar Íran hefur sagt að viðbrögð þeirra við árás Ísraels á suðurhluta Beirút „séu yfirvofandi“.

Í yfirlýsingu sem íranskir fjölmiðlar birta kallar Mohammad Bagher Zolghadr, fulltrúi þjóðaröryggisráðs landsins, Líbanon „lífæð“ Íran og segir að „brot á rauðum línum Íslamska lýðveldisins verði ekki liðin“. BBC greinir frá þessu

Íran hefur ítrekað haldið því fram að hvers kyns samningur við Bandaríkin verði einnig að fela í sér endalok stríðsins í Líbanon. Á sama tíma hafa yfirvöld í Ísrael sagt þetta aðskilin átök. 

Bandaríkin beri einnig ábyrgð á árásinni

Íran hefur sagt í kjölfar árásar Ísraels á Beirút að Bandaríkin beri „beina ábyrgð“ á þeim „glæpum“ sem Ísrael fremji.

Utanríkisráðuneyti Íran segir í yfirlýsingu að það „fordæmi harðlega“ árásina, sem sé „augljóst brot á fullveldi Líbanons“.

Það bætir við að árásin sé „gróft brot“ á vopnahléssamkomulaginu milli Írans og Bandaríkjanna, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.

Utanríkisráðuneytið segir Bandaríkin einnig bera beina ábyrgð á „vopnahlésbrotum“ Ísraels og „ítrekar staðfestu sína í að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að nýta rétt sinn til lögmætrar sjálfsvarnar“.

Ísrael hefur sagt að árásin hafi beinst að stjórnstöð Hezbollah í líbönsku höfuðborginni.

Trump í áfalli

Trump sagðist hafa orðið fyrir áfalli þegar ráðgjafar hans hringdu til að upplýsa hann um árás Ísraels í Beirút og hann hafi verið ævareiður út í forsætisráðherra Ísraels, að sögn Axios.

„Þetta er svo slæmt – ég trúði þessu ekki. Klukkutíma áður en við áttum að undirrita samninginn.“ Trump tekur undir með Ísrael að Hezbollah í Líbanon hafi fyrst ráðist á Ísrael en lagði áherslu á að sú árás hefði ekki valdið neinum skemmdum eða orðið neinum að bana.

„Þetta hristi upp í hlutunum. Þetta seinkaði undirrituninni um nokkra klukkutíma. Hún átti að vera núna. Nú er hún áætluð eftir nokkra klukkutíma,“ sagði Trump í samtali við fréttamann Axios.

Fréttin er í vinnslu.


Tengdar fréttir

Friðarviðræður sagðar í uppnámi

Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 

Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf

Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma.

„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×