Erlent

Friðar­við­ræður sagðar í uppnámi

Tómas Arnar Þorláksson og Eiður Þór Árnason skrifa
Trump hefur ítrekað lýst því yfir að samkomulag sé svo gott sem í höfn.
Trump hefur ítrekað lýst því yfir að samkomulag sé svo gott sem í höfn. Getty/Samuel Corum

Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Samkvæmt umfjöllun miðla í Líbanon eru minnst þrír látnir eftir árásina.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrr í dag að friðarsamkomulag yrði undirritað í dag og vonaðist til þess að ganga frá samkomulaginu á afmælisdag sinn en hann er áttræður í dag.

Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social að árás Ísraela hefði ekki átt að eiga sér stað. Hann hvatti alla aðila á svæðinu til að halda ró sinni og skrifaði að „það gæti stefnt í langvarandi og fallegan frið. Við skulum ekki klúðra þessu!“

Trump telur samt sem áður að samningur við Íran verði undirritaður „á næstu tveimur til þremur klukkustundum.“ Þetta sagði hann í samtali við Fox News. Bætti Trump við að hann hefði talað við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í síma eftir árásirnar á Beirút í dag. Trump virtist lýsa gremju sinni og notaði blótsyrði til að spyrja Netanjahúhvað hann væri að gera, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.

„Hann sagði forsætisráðherranum að gera ekki frekari árásir á Hezbollah, svo það hefði ekki áhrif á framgang þessa samnings,“ sagði Trey Yingst, fréttamaður Fox News í beinni frá höfuðborg Ísraels.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×