Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2026 15:18 Palestínskir drengir horfa á eftir fótbolta þeirra, sem sparkað var yfir gaddavír sem settur hafði verið kringum fótboltavöll þeirra á Vesturbakkanum. Fótboltavöllurinn er í bedúínaþorpinu Umm al-Khair en þar nærri er Carmel-landtökubyggðin. AP/Leo Correa Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum.
Amnesty birti í gær ítarlega skýrslu um málið þar sem sérstök áhersla er lögð á Bedúína á Vesturbakkanum og önnur samfélög hirðingja. Þar segir að ofbeldishneigðir landtökumenn sem hafi rekið Palestínumenn á brott frá byggðum sínum á Vesturbakkanum, geri það með stuðningi ísraelska ríkisins. Alþjóðasamfélagið lítur að langmestu leyti á þessar byggðir sem ólöglegar. Vesturbakkinn hefur verið undir hernámi Ísraela frá 1967 en hann á að vera hluti af framtíðarríki Palestínumanna. Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði árið 2024 að hernám Ísraela væri ólöglegt en þar búa nú rúmlega sjö hundruð þúsund Ísraelar. 363 landtökubyggðir Í skýrslu Amnesty er vísað í gögn frá Sameinuðu þjóðunum, þar sem fram kemur að frá janúar 2023 til apríl 2026 hafi Bedúínar og aðrir Palestínumenn verið reknir, að fullu eða að hluta til, frá að minnsta kosti 117 byggðum á Vesturbakkanum. Um er að ræða að minnsta kosti 5.910 manneskjur. Rannsakendur Amnesty fundu að minnsta kosti fjórtán tilfelli þar sem ísraelskir hermenn voru á staðnum þegar landtökumenn veittust að Bedúínum og Palestínumönnum, eða tóku jafnvel beinan þátt í ofbeldinu. Ísraelar eru sagðir hafa byggt 363 landtökubyggðir á svæðinu og þar af allt að 212 frá 2023. Yfirvöld í Ísrael hafa lítið gert til að reyna að sporna gegn þessari landtöku, þó landtökubyggðirnar séu ólöglegar samkvæmt lögum Ísrael og alþjóðasamþykktum sem Ísraelar eru aðilar að. AP fréttaveitan hefur eftir Agnès Callamard, stjórnanda Amnesty, að ekki sé um að ræða nokkur „skemmd epli“. Þetta séu ríkisstuddar þjóðernishreinsanir. „Við erum að sjá markvissa og ríkisleidda innlimun, sem fer alfarið gegn alþjóðasamtökum, berum augum.“ Ráðherrar kalla eftir innlimun Ráðamenn í Ísrael þvertaka sífellt fyrir að þeir stundi þjóðernishreinsanir og hafa fordæmt allra versta ofbeldið gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum, en þó á þeim grundvelli að um einstök atvik og undantekningar sé að ræða. Margir af ráðherrum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú eru leiðtogar úr landtökubyggðum eða stuðningsmenn þeirra og hafa mikilvægir ráðherrar kallað eftir formlegri innlimun Vesturbakkans. Stutt er síðan Ísraelar samþykktu lög sem segja til um að allir Palestínumenn sem bana Ísraelum verði teknir af lífi. Sjá einnig: Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í fyrra að hann myndi ekki leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann. Var það eftir að ísraelskir þingmenn samþykktu ályktun um að innlima Vesturbakkann.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Ísraelskir þjóðernissinnar kölluðu eftir dauða og tortímingu Palestínumanna í árlegri göngu sinni um palestínska hluta Austur-Jerúsalem í gær. „Megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ heyrðist hrópað er mannfjöldinn gekk í gegnum gamla borgarhlutann. 15. maí 2026 07:12 Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Embættismenn úr Hvíta húsinu eru sagðir hafa ítrekað við ísraelsk stjórnvöld þá afstöðu Trump forseta að Ísraelar megi ekki innlima Vesturbakkann eins og virðist stefna í að verði gert. 10. febrúar 2026 07:44 Rannsaka aftöku hermanna á tveimur mönnum í Jenín Dómsmálaráðuneyti Ísrael rannsakar nú ísraelska landamæraverði sem skutu tvo grunaða vígamenn til bana á Vesturbakkanum í gær. Það var gert eftir að mennirnir gáfust upp fyrir landamæravörðum. Myndband af aftökunni í Jenin fór í dreifingu í gær. 28. nóvember 2025 13:07 Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Frakkland hefur bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa lýst yfir viðurkenningu á sjálfstæðri Palestínu. Áður höfðu Bretland, Kanada og Ástralía gert slíkt hið sama. 23. september 2025 07:03 Mótmæla hugmyndum um innlimun nær alls Vesturbakkans Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að Ísraelsmenn myndu fara yfir „rauða línu“ ef þeir innlimuðu Vesturbakkann. Þá myndi það gera út um möguleikann á svokallaðri „tveggja ríkja lausn“ á deilu Ísrael og Palestínumanna. 4. september 2025 07:01 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira
Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Ísraelskir þjóðernissinnar kölluðu eftir dauða og tortímingu Palestínumanna í árlegri göngu sinni um palestínska hluta Austur-Jerúsalem í gær. „Megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ heyrðist hrópað er mannfjöldinn gekk í gegnum gamla borgarhlutann. 15. maí 2026 07:12
Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Embættismenn úr Hvíta húsinu eru sagðir hafa ítrekað við ísraelsk stjórnvöld þá afstöðu Trump forseta að Ísraelar megi ekki innlima Vesturbakkann eins og virðist stefna í að verði gert. 10. febrúar 2026 07:44
Rannsaka aftöku hermanna á tveimur mönnum í Jenín Dómsmálaráðuneyti Ísrael rannsakar nú ísraelska landamæraverði sem skutu tvo grunaða vígamenn til bana á Vesturbakkanum í gær. Það var gert eftir að mennirnir gáfust upp fyrir landamæravörðum. Myndband af aftökunni í Jenin fór í dreifingu í gær. 28. nóvember 2025 13:07
Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Frakkland hefur bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa lýst yfir viðurkenningu á sjálfstæðri Palestínu. Áður höfðu Bretland, Kanada og Ástralía gert slíkt hið sama. 23. september 2025 07:03
Mótmæla hugmyndum um innlimun nær alls Vesturbakkans Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að Ísraelsmenn myndu fara yfir „rauða línu“ ef þeir innlimuðu Vesturbakkann. Þá myndi það gera út um möguleikann á svokallaðri „tveggja ríkja lausn“ á deilu Ísrael og Palestínumanna. 4. september 2025 07:01