Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. maí 2026 21:03 Þau Sverrir Einar og Vesta Mikute stefndu að því að endurvekja gamla B5. Aðsend Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf.
Sverrir Einar festi kaup á staðnum við Bankastræti 5 af Birgittu Líf Björnsdóttur sumarið 2023. Hún hafði rekið staðinn undir formerkjum Bankastræti Club en markmið Sverris Einars og Vesta Mikute, unnustu hans, var að „endurvekja stemninguna sem var áður á b5“. Staðurinn fékk nafnið B5 Club Reykjavík en einungis nokkrum mánuðum síðar, í ágúst 2023, var lagt lögbann á notkun vörumerkisins b5 við veitingarekstur staðarins. Samkvæmt skráningu Hugverkastofu er vörumerkið b5 Bar - Bistro í eigu KG ehf. sem höfðaði mál gegn B Reykjavík ehf. í október 2023 vegna notkunarinnar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi svo að B Reykjavík ehf. þyrfti að greiða KG ehf. fimm hundruð þúsund krónur fyrir ólögmæta hagnýtingu vörumerkis. Kynnti sig sem eiganda í fjölmiðlum Í kjölfarið áfrýjaði KG ehf. dómnum til Landsréttar og krafðist þess að Sverrir sjálfur ætti að greiða tæpar tíu milljónir króna fyrir ólögmæta notkun á orð- og myndmerkingu b5. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Dómurinn taldi það óumdeilt að KG ehf. væri skráður eigandi vörumerkisins og hið sama vörumerki hefði verið notað til að merkja staðinn B5 Club Reykjavík. Einnig var táknið notað á fatnað starfsfólks og í kynningarefni á samfélags- og fréttamiðlum. Sverrir Einar hefði þá verið skráður raunverulegur eigandi alls hlutafjár í félaginu og kynnt sig og komið fram sem eigandi staðarins í fjölmiðlum og öðrum samskiptum. Vísað var einnig í færslu Sverris frá 18. janúar 2024 þar sem hann tilkynnti að nafn staðarins væri á ný b5, eftir að hafa verið B um tímaHefur sent lögreglustjóra formlega kvörtun, þar sem ekki væri hægt að banna notkun nafnsins sem væri skammstöfun á heimilisfangi staðarins. „Í gangi er dómsmál þar sem tekist er á um notkun nafnsins, en lögmaður okkar, Sveinn Andri Sveinsson, segir að ekki séu forsendur til þess að meina okkur að notast við skammstöfun á heimilsfangi staðarins og það geti enginn átt einkarétt sem kemur í veg fyrir lögmæta notkun eigenda á heimilisfangi,“ sagði hann í færslunni. „Með vísan til framangreinds þykir ljóst að stefndi braut meðvitað og af ásetningi gegn vörumerkjarétti áfrýjanda [KG ehf.] og hagnýtti vörumerki hans í rekstri skemmtistaðar síns, sem hann átti að öllu leyti í gegnum eignarhald sitt á B Reykjavík ehf.,“ segir í dómi Landsréttar. Sverri Einari var því gert skylt að greiða KG ehf. fimm hundruð þúsund krónur vegna ólögmætar notkunar vörumerkisins. Landsréttur taldi upphæðina hæfilegt endurgjald. B Reykjavík ehf. var úrskurðað gjaldþrota 19. febrúar 2025 en í maí 2024 sagði Sverrir Einar skilið við rekstur skemmtistaðarins og ákvað frekar að einbeita sér að rekstri skemmtistaðarins Exit og Nýju vínbúðarinnar. Reksturinn hafi verið afar þungur vegna ítrekaðra afskipta lögreglu af staðnum.
Næturlíf Veitingastaðir Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir B opnar á ný eftir afturköllun starfsleyfis Skemmtistaðurinn B, áður b5 og Bankastræti club, opnar á ný um helgina eftir að sýslumaður afturkallaði starfsleyfi staðarins þann 27. október síðastliðinn. 5. desember 2023 17:26 Skemmtistaðnum B lokað og eigandinn leiddur út í járnum Skemmtistaðnum B við Bankastræti 5 í Reykjavík var lokað á laugardagskvöld vegna þess að of margir gestir voru á staðnum og einhverjir gestir reyndust undir lögaldri. Sverrir Einar Eiríksson, eigandi staðarins, var handtekinn og leiddur út af staðnum í járnum. 19. september 2023 06:37 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Sjá meira
B opnar á ný eftir afturköllun starfsleyfis Skemmtistaðurinn B, áður b5 og Bankastræti club, opnar á ný um helgina eftir að sýslumaður afturkallaði starfsleyfi staðarins þann 27. október síðastliðinn. 5. desember 2023 17:26
Skemmtistaðnum B lokað og eigandinn leiddur út í járnum Skemmtistaðnum B við Bankastræti 5 í Reykjavík var lokað á laugardagskvöld vegna þess að of margir gestir voru á staðnum og einhverjir gestir reyndust undir lögaldri. Sverrir Einar Eiríksson, eigandi staðarins, var handtekinn og leiddur út af staðnum í járnum. 19. september 2023 06:37