Ungt fólk þarf að vita hvar bjargræðin liggja Sigrún Jónsdóttir skrifar 24. apríl 2026 15:01 Of mikið af ungu fólki í Hafnarfirði fær hjálp of seint. Ekki vegna þess að hjálpin sé ekki til staðar heldur vegna þess að þau hvorki vita af þjónustunni né hvar hana er að finna. Hvar er hjálp að finna? Þetta sá ég með eigin augum þegar ég sat í stjórn Bergsins – headspace sem styður við ungmenni sem glíma við kvíða, þunglyndi og erfiðar aðstæður. Sum þeirra koma snemma og fá mikilvægan stuðning. Önnur koma seint- og jafnvel ekki. Það sem skiptir þetta unga fólk máli er að vita hvar það getur leitað sér hjálpar. Grípum unga fólkið núna Hugmyndafræði Bergsins er einföld. Opnar dyr, engar tilvísanir og stuðningur þegar þörfin er til staðar. Í Hafnarfirði sjáum við hvað þetta skiptir máli. Þegar Bergið var í ungmennahúsinu Hamrinum gátu ungmenni gengið beint inn og nýtt sér þjónustuna. Þegar starfsemin færðist í minna sýnilegt húsnæði dró úr aðsókn. Það þarf ekki alltaf ítarlegar rannsóknir og greinagerðir: þegar það er auðvelt að leita sér hjálpar - þá gerist það. Opnar dyr verða að nýtast Þess vegna ákvað ég að fara í pólitík. Ef við ætlum að taka andlega heilsu ungs fólks alvarlega þurfum við að tryggja að þjónustan sé þar sem þau eru – sýnileg og aðgengileg í þeirra nærumhverfi. Það er ekki flókið. Það er einföld ákvörðun. Viðreisn í Hafnarfirði vill styrkja stoðþjónustu í skólum, efla forvarnir og fjölga sérfræðingum. En það sem skiptir ekki síður máli er að þjónusta fyrir ungt fólk sé í þeirra nærumhverfi þannig að þau geti strax leitað sér hjálpar. Tíminn skiptir máli Munurinn á því að grípa inn í snemma eða seint er ekki smár. Við vitum hvað virkar og höfum séð það í framkvæmd. Spurningin er hvort við ætlum að gera það. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar til bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Börn og uppeldi Hjálparstarf Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Of mikið af ungu fólki í Hafnarfirði fær hjálp of seint. Ekki vegna þess að hjálpin sé ekki til staðar heldur vegna þess að þau hvorki vita af þjónustunni né hvar hana er að finna. Hvar er hjálp að finna? Þetta sá ég með eigin augum þegar ég sat í stjórn Bergsins – headspace sem styður við ungmenni sem glíma við kvíða, þunglyndi og erfiðar aðstæður. Sum þeirra koma snemma og fá mikilvægan stuðning. Önnur koma seint- og jafnvel ekki. Það sem skiptir þetta unga fólk máli er að vita hvar það getur leitað sér hjálpar. Grípum unga fólkið núna Hugmyndafræði Bergsins er einföld. Opnar dyr, engar tilvísanir og stuðningur þegar þörfin er til staðar. Í Hafnarfirði sjáum við hvað þetta skiptir máli. Þegar Bergið var í ungmennahúsinu Hamrinum gátu ungmenni gengið beint inn og nýtt sér þjónustuna. Þegar starfsemin færðist í minna sýnilegt húsnæði dró úr aðsókn. Það þarf ekki alltaf ítarlegar rannsóknir og greinagerðir: þegar það er auðvelt að leita sér hjálpar - þá gerist það. Opnar dyr verða að nýtast Þess vegna ákvað ég að fara í pólitík. Ef við ætlum að taka andlega heilsu ungs fólks alvarlega þurfum við að tryggja að þjónustan sé þar sem þau eru – sýnileg og aðgengileg í þeirra nærumhverfi. Það er ekki flókið. Það er einföld ákvörðun. Viðreisn í Hafnarfirði vill styrkja stoðþjónustu í skólum, efla forvarnir og fjölga sérfræðingum. En það sem skiptir ekki síður máli er að þjónusta fyrir ungt fólk sé í þeirra nærumhverfi þannig að þau geti strax leitað sér hjálpar. Tíminn skiptir máli Munurinn á því að grípa inn í snemma eða seint er ekki smár. Við vitum hvað virkar og höfum séð það í framkvæmd. Spurningin er hvort við ætlum að gera það. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar til bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar