Erlent

Hormússund sagt lokað á ný

Eiður Þór Árnason skrifar
Hormússund er hluti af einni mikilvægustu siglingaleið heims og hefur lokun þess haft mikil áhrif á olíuverð og alþjóðahagkerfið.
Hormússund er hluti af einni mikilvægustu siglingaleið heims og hefur lokun þess haft mikil áhrif á olíuverð og alþjóðahagkerfið. Getty/Raju Shinde

Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið.

Forsætisráðherra Ísrael gaf í kjölfarið út að vopnahléið næði ekki til átaka Ísraelshers við Hezbollah í Líbanon. AP-fréttaveitan greinir frá þessu.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að nálægum skipum hafi verið tilkynnt að Hormússund væri lokað og þeim óheimilt að sigla þar í gegn án leyfis frá Íranska byltingarverðinum. „Öll skip sem reyna að sigla út á haf verða skotmörk og þeim sökkt,” sagði í tilkynningunni.

Vara við alvarlegum afleiðingum

Ríkismiðill í Íran segir að Íranski byltingarvörðurinn vari nú við afleiðingum þess að árásum á Líbanon verði ekki hætt. Íranski byltingarvörðurinn boði viðbrögð sem „muni valda eftirsjá“ ef árásum verði ekki hætt tafarlaust. Á samskiptamiðlinum Telegram segir ríkismiðillinn að Bandaríkjunum og stjórnvöldum í Ísrael sé hér með send ströng viðvörun.

Kharg-eyja
Hormússund
JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR

Ísraelsher gerði í gær árásir á nokkur verslunar- og íbúðahverfi í miðborg Beirút, höfuðborgar Líbanon, nokkrum klukkustundum eftir að tilkynnt var um áðurnefnt vopnahlé. Yfirvöld í Líbanon segja að minnst 112 manns hafi fallið og hundruð særst sem gerir þetta einn mannskæðasta daginn í stríði Ísraels og Hezbollah til þessa.

Ríkisfréttastofan Islamic Republic News Agency hefur eftir embættismanni innan Íranska byltingarvarðarins: „Sérhver árás á hið stolta Hezbollah er árás á Íran. [Herinn] undirbýr hörð viðbrögð við villimannslegum glæpum stjórnarinnar í [Ísrael],“ að því er fram kemur í frétt BBC.

Utanríkisráðherra Írans með skilaboð til Bandaríkjanna

Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran sagði í skilaboðum til Bandaríkjanna að stríði Ísraels gegn Hezbollah í Líbanon yrði að ljúka og þetta yrði hluti af vopnahléssamkomulaginu við Bandaríkin, þvert á það sem Ísrael hefur sagt. 

„Heimurinn sér fjöldamorðin í Líbanon,“ sagði hann í færslu á X, áður Twitter. „Boltinn er hjá Bandaríkjunum og heimurinn fylgist með því hvort þau standi við skuldbindingar sínar.“

Karoline Leavitt er talskona Hvíta hússins.AP

Bandaríkjastjórn staðfestir að Líbanon sé ekki hluti af samkomulaginu

Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði við blaðamenn nú síðdegis að Líbanon væri ekki hluti af vopnahléssamkomulaginu. Aðspurð hvort Líbanon gæti orðið hluti af samkomulaginu sagði hún að það yrði áfram til umræðu.

Leavitt bætti við að Bandaríkjaforseti væri að senda samningateymi sitt til Islamabad í Pakistan en stjórnvöld þar hafa átt milligöngu um viðræður Bandaríkjanna og Íran. Teymið samanstæði af JD Vance varaforseta, Steve Witkoff, ráðgjafa Trumps, og Jared Kushner, tengdasyni forsetans. Samtöl muni hefjast á laugardagsmorgun að staðartíma. 

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×