Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Lovísa Arnardóttir skrifar 17. mars 2026 06:45 Arna María segir vont að geta ekki framleitt í svo langan tíma. Aðsendar Framleiðsluvélin sem notuð er til að búa til hafravörur Veru Örnudóttur bilaði nýlega og ekki verður hægt að framleiða meira af veganskyrinu eða öðrum hafravörum fyrr en í fyrsta lagi í maí. Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, segir það högg og vont fyrir bæði fyrirtækið og viðskiptavini. „
Við erum að færa framleiðsluna á milli hæða og þessi bilun varð við flutninginn, varahluturinn er ekki fáanlegur og við erum í algjöru framleiðslustoppi. Við sjáum ekki fram á að geta framleitt meira fyrr en í fyrsta lagi í maí. Við vonum auðvitað að það gerist fyrr en ég held að það sé ekki raunhæft að tala um að það verði af því fyrr en í maí,“ segir Arna María í samtali við Vísi. Hún segir þetta augljósan tekjumissi fyrir fyrirtækið og þjónustuskerðingu við viðskiptavini. Hún segir varahlutinn sem vantar nauðsynlegan fyrir framleiðsluna. Hafrajógúrt með grískum hætti. Aðsend „Þetta er sérstök framleiðsluaðferð og þessi varahlutur er notaður til að ná fram ákveðnum gæðum á vöru. Þetta er fersk vara og því notum við ekki mikið af aukaefnum. Svo erum við líka að reyna að hafa þetta eins líkt mjólkurvörum og við getum og það þarf ákveðinn varahlut til þess og það er hann sem fæst ekki. Þannig það stoppar okkur alveg.“ Vörumerkið Vera er afsprengi Örnu mjólkursölu. Vörurnar eru allar vegan og komu fyrst á markað 2022 eftir að hafa verið í þróun í um eitt og hálft ár. Öll framleiðsla og pökkun á vörum frá Veru Örnudóttur fer fram í Bolungarvík. Högg fyrir viðskiptavini og fyrirtækið „Þetta er dálítið högg. Það er nokkuð úrval af vegan mjólkurafurðum en við vorum fyrst með íslenska framleiðslu á svona ferskum haframjólkurvörum og fólk hefur tekið mjög vel í þær. Ég held það sé ágætlega stór hópur sem er vegan eða þolir illa mjólk sem hefur verið að velja þennan valkost fram yfir annan. Þannig þetta er vont, bæði fyrir okkur að missa út framleiðsluna í allan þennan tíma, en líka fyrir viðskiptavini okkar. Okkur þykir virkilega miður að geta ekki boðið þeim upp á vöruna okkar.“ Arna María telur að það sem síðast var framleitt sé búið í öllum verslunum og ef það er eitthvað enn til heima eða í verslun sé það við það að renna út. Vörurnar eru vinsælar meðal þeirra sem eru vegan og hefur nokkuð verið rætt um framleiðslustöðvunina í hópnum Vegan Ísland. Arna María segir ánægjulegt að fólk bíði spennt eftir vörunni og taki eftir því að hana vanti í hillurnar. Vöruúrvalið verði það sama þegar þau geta hafið framleiðslu á ný. „Við hlökkum til að framleiða aftur og vonum að fólk taki vel í vörurnar þegar þær koma aftur í hilluna.“ Vissu varla hvað laktósalaust þýddi Hún segir að frá upphafi hafi vörunum verið afar vel tekið, bæði Veru og Örnu. „Við byrjuðum auðvitað 2013 með laktósalausar mjólkurvörur. Það var rosalega takmarkað úrval þá og hefur mikið breyst síðan. Þegar við byrjuðum vissi fólk ekki almennilega hvað það þýddi að vera án laktósa. Nú er það breytt. Það var svona svipað með þetta. Okkur fannst vanta ferska vegan vöru og fórum að prófa okkur áfram og úr varð þessi vörulína,“ segir hún og að tæknin sem sé notuð til að búa til hafraskyrið sé einstök í heiminum. „Það er svo skemmtilegt að þetta heppnaðist svona vel og að fólk hafi tekið svona vel í þetta.“
Matvælaframleiðsla Bolungarvík Neytendur Landbúnaður Vegan Mest lesið Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Atvinnulíf ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira