Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2026 10:27 Mynd af áhlaupinu um borð í Sea Owl 1 í gær. Kustbevakningen Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) og sænskir sérvseitarmenn gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.
Skipið kallast Sea Owl 1 og hefur verið beitt refsiaðgerðum af Evrópusambandinu. Því var siglt undir fána Kómorueyja og leikur sá grunur að skipinu hafi verið siglt undir fölsku flaggi. Í yfirlýsingu frá Strandgæslunni segir að leit hafi verið framkvæmd um borð og áhafnarmeðlimir yfirheyrðir. Þá segir að skipið hafi verið notað til að flytja olíu milli Rússlands og Brasilíu og að þegar það hafi verið stöðvað í gær hafi verið að sigla því til Primorsk í Rússlands. Enginn farmur hafi verið um borð. Skipstjórinn er rússneskur en hann er grunaður um ýmis brot eins og skjalafals. Fyrir viku síðan gerðu Svíar áhlaup um borð í skipið Caffa, sem var siglt undir fána Gíneu. Mikilvæg tekjulind rússneska ríkisins Ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað skip úr þessum „skuggaflota“ til að selja olíu þrátt fyrir viðskiptaþvinganir. Tekjurnarafá þessari olíusölu eru rússneska ríkinu gífurlega mikilvægar. Sérfræðingar telja hundruð skipa tilheyra þessum flota en í flestum tilfellum er um að ræða gömul olíuflutningaskip sem eru oft í slæmu ástandi. Þeim er reglulega siglt án þess að þau sendi út staðsetningarupplýsingar eða sendar eru út falskar upplýsingar um staðsetningu þeirra. Sjá einnig: Svona virkar „skuggaflotinn“ Samkvæmt alþjóðasamþykktum um skipaflutninga eiga skip að vera skráð í tilteknum ríkjum og bera fána þeirra. Skip eru þá bundin reglum og lögum þeirra ríkja þar sem þau eru skráð. Kerfið var þróað til að tryggja að flutningaskip séu tryggð og að komið sé vel fram við áhafnarmeðlimi. Senda hermenn um borð í skuggaskip Skipum skuggaflotans er iðulega siglt undan ströndum Evrópuríkja en Úkraínumenn hafa lengi kallað eftir harðari aðgerðum gegn skuggaflotanum. Þrátt fyrir refsiaðgerðir og þvinganir hefur í raun lítið verið gert á undanförnum árum. Nokkur breyting virðist hafa orðið þar á og sérstaklega eftir að Bandaríkjamenn tóku yfir nokkur skip sem notuð voru til að smygla olíu frá Venesúela. Síðan þá hafa ríki í Evrópu einnig gripið til sambærilegra aðgerða. SVT segir að um 25 skip sem talin eru tilheyra Skuggaflotanum fari um Eystrasaltshafið á degi hverjum. Síðan byrjað var að fara um borð í þessi skip hefur það færst í aukana að skipunum sé fylgt eftir af rússneskum herskipum og þá hefur einnig færst í aukana að hermenn eða rússneskir málaliðar séu um borð í þessum skipum. Rannsóknarmiðillinn OCCRP sagði frá því í vikunni að listi yfir áhafnarmeðlimi þessara skipa bendi til þess að þegar skipunum sé siglt um Eystrasaltshafið séu oft tveir aukamenn í áhöfnum þeirra. Margir þessara manna hafi reynst með tengingar við rússneska herinn, rússneska málaliðahópa eins og Wagner eða Afríkusveitina eða með tengingar við ZVR, rússnesku leyniþjónustuna sem starfar á erlendri grundu. Veru þessara manna um borð í skipunum er ætlað að draga úr vilja ráðamanna í Evrópu til að stöðva þau.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Skipaflutningar Svíþjóð Bensín og olía Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Fleiri fréttir Fjarhægrimenn gætu fundið smörþefinn af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Sjá meira