Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Kjartan Kjartansson skrifar 3. mars 2026 10:28 Zack Polanski, leiðtogi breskra Græningja, fagnar með Hönnuh Spencer, frambjóðanda flokksins, sem vann þingsæti í Gorton og Denton í aukakosningum í síðustu viku. Verkamannaflokkurinn átti þingsætið áður. AP/Jon Super Umbrot í stjórnmálalandslagi Bretlands halda áfram ef marka má nýja skoðanakönnun þar sem Græningjar mælast næstvinsælasti flokkur landsins og stærri en bæði Verkamanna- og Íhaldsflokkurinn. Græningjar njóta mest stuðnings fólks sem er yngra en fimmtugt.
Bæði Verkamannaflokkurinn og Íhaldsflokkurinn, risar breskra stjórnmála síðustu rúmu öldina, hafa átt í vök að verjast að undanförnum. Ríkisstjórn Verkamannaflokksins hefur verið gríðarlega óvinsæl frá upphafi og Íhaldsflokkurinn hefur ekki borið barr sitt eftir niðurlægingarskeið þar sem hann fór í gegnum þrjá leiðtoga á tveimur árum. Umbótaflokkur Nigels Farage hefur mælst stærstur í skoðanakönnunum um margra mánaða skeið þó að fylgið hafi aðeins kvarnast af honum frá því að það reis sem hæst. Ríkisstjórn Keirs Starmer og Verkamannaflokksins er gríðarlega óvinsæl í Bretlandi. Flokkurinn mælist nú á eftir bæði Umbótaflokknum og Græningjum í skoðanakönnun.Vísir/EPA Þau stórtíðindi eru nú í nýjustu könnun YouGov fyrir Sky-fréttastöðina að Græningjar eru teknir fram úr bæði Verkamannaflokknum og Íhaldsflokknum. Hann mælist nú með 21 prósent gegn 23 prósentum Umbótaflokksins. Verkamannaflokkurinn og Íhaldsflokkurinn eru með sextán prósent hvor um sig. Græningjar njóta mest stuðnings flokkanna í öllum aldurshópum undir fimmtugu í könnuninni, þar af rétt tæpum helmings fólks á aldrinu 18-24 ára. Þeir eru með yfir fjórðungsfylgi hjá 25-49 ára. Samsteypustjórn, minnihlutastjórn eða meirihlutastjórn með minnihluta atkvæða Fylgi Verkamannaflokksins úr síðustu kosningum er nú sagt dreifast yfir pólitíska litrófið. Flokkurinn hlaut rúman þriðjung atkvæða í þingkosningum árið 2024. Aðeins 37 prósent þeirra sem kusu flokkinn síðast ætla að gera það aftur samkvæmt könnuninni. Fjórðungur segist ætla að kjósa Græningja, átta prósent Frjálslynda demókrata en fimmtungur hefur ekki gert upp hug sinn. Græningjar vöktu umtalsverða athygli á dögunum þegar þeir unnu þingsæti sem Verkamannaflokkurinn hélt í aukakosningum í Gorton og Denton. Kemi Badenoch er þriðji leiðtogi Íhaldsflokksins frá 2022 og sá fimmti frá 2019.Getty Yrðu úrslit kosninga nálægt niðurstöðum nýju könnunarinnar væri mögulegt að enginn flokkur næði meirihluta þingsæta og að mynda þyrfti samsteypu- eða minnihlutastjórn. Í Bretlandi er kosið í einmenningskjördæmum og siguvegarinn þarf ekki að hafa meirihluta atkvæða á bak við sig. Verkamannaflokkurinn er þannig núna með rúmlega 62 prósent þingsæta út á um þriðjung atkvæða í síðustu kosningum. Eftir því hvernig fylgi flokkanna dreifist á landsvísu er þannig mögulegt að einn flokkur gæti náð meirihluta á breska þinginu með allt niður í fjórðung atkvæða í landinu öllu í næstu kosningum.
Bretland Skoðanakannanir Kosningar í Bretlandi Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira