Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Agnar Már Másson skrifar 28. febrúar 2026 18:27 Andri Þór Guðmundsson er forstjóri Ölgerðarinnar. Vísir/Vilhelm Andri Þór Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum eftir að hafa starfað sem forstjóri Ölgerðarinnar, sem mun nú heita Bera, í rúmlega tvo áratugi. Hann hyggst þó ekki fara langt enda býður hann sig fram til stjórnarformennsku í móðurfélaginu Beru.
Í stað Andra hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli Rúnar Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, sem verður nú dótturfélag Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins, samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi út. Breytingarnar taka gildi á morgun, 1. mars. Ölgerð Egils Skallagrímssonar tilkynnti nýlega að hún myndi breyta nafni sínu í Bera, sem var nafn móður stórhöfðingjans sem félagið kennir sig við. Nýtt dótturfélag yrði stofnað utan um starfsemi Ölgerðarinnar. Nafnbreytingin var samþykkt á hluthafafundi á fimmtudag. Eftir breytingarnar verða rekstrarfélögin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab, Iceland Spring, Danól, G7-11 fasteignafélag og Ölgerðin systurfélög og í eigu móðurfélagsins sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu. Haft er eftir Andra, fráfarandi forstjóra, að hann hafi séð tækifæri til breytinga og öflugrar sóknar samstæðunnar. Jón Þorsteinn Oddleifsson er nýr forstjóri Beru. „Ég bar hugmynd mína um að láta af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar og bjóða mig fram til stjórnar á næsta aðalfundi, undir stjórnarformanninn Boga Þór Siguroddsson. Úr þeim samtölum kom sú hugmynd að ég myndi jafnframt sækjast eftir því að taka við af honum sem stjórnarformaður og sinna stórum og sértækum verkefnum fyrir félagið sem snúa meðal annars að framtíðaruppbyggingu erlenda hluta starfseminnar og viðskiptaþróun með áherslu á ytri vöxt félagsins,“ er haft eftir Andra. Þá er haft eftir Boga Þór, fyrrgreindum stjórnarformanni sem er jafnframt stærsti einstaki hluthafi félagsins, að þetta sé skynsamlegt skref af hálfu Andra. „Með þeim áherslubreytingum sem verða með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags Beru, fannst mér rétt að Andri Þór kæmi ekki aðeins í stjórn móðurfélagsins, heldur tæki við stjórnarformennsku félagsins og leiddi þá sókn sem fram undan er. Fyrirtækið er afar öflugt og verður enn öflugra með þeim áherslubreytingum, sóknarsinnaða hugarfari og hugmyndum sem liggja á borðinu,“ segir Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar.
Ölgerðin Tímamót Kauphöllin Vistaskipti Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira