Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar 27. febrúar 2026 09:02 Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar lögðum við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að hefjast handa um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Tillagan byggir á niðurstöðum starfshóps sem lauk störfum í lok síðasta árs þar sem gert er m.a. ráð fyrir íbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu og við Heiðvang/Vesturvang í Norðurbæ. Látum verkin tala Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafnaði tillögunni, þó hún væri samhljóða tillögu sem er að finna í meirihlutasamkomulagi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn sumarið 2022. Sú tillaga dagaði hins vegar uppi nokkrum mánuðum síðar. Ekkert gerðist í málinu eða þar til Samfylkingin lagði til að stofnaður yrði fyrrgreindur starfshópur sem mótaði tillögur um uppbyggingu húsnæðis og þjónustu fyrir eldri borgara. Nú hefur starfshópurinn skilað sinni vinnu og eftir stendur að láta verkin tala. Engin íbúð fyrir eldra fólk verið byggð Öldrun þjóðarinnar er ein stærsta áskorun ríkis og sveitarfélaga sem þarf að mæta með margvíslegum hætti, t.d. með þjónustu og uppbyggingu fjölbreyttra húsnæðiskosta. Tillaga okkar jafnaðarfólks miðar að því. Það eina sem Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hefur til málanna að leggja er að skoða málið, fara í greiningarvinnu og vinna uppbyggingaráætlun til 10 ára. Ekkert á frekar að gera. Árangurinn er því enginn - engin þjónustuíbúð fyrir eldra fólk hefur verið byggð á kjörtímabilinu. Uppbygging íbúða fyrir eldra fólk forgangsmál Stjórnmál fjalla um að veita mikilvægum málum forystu og leiða þau til lykta. Núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skortir metnað og dug, enda hafnaði hann eigin tillögu um kröftuga uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk. Það er eins og minnisvarði um hringlandann og þróttleysið sem einkennt hefur störf meirihlutans þetta kjörtímabil. Við jafnaðarfólk í Hafnarfirði munum gera það að forgangsmáli þegar við tökum við stjórn bæjarins að loknum kosningum 16. maí nk. að hefja byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði og efla þjónustu sem gerir fólki kleift að búa lengur heima hjá sér. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Már Gunnlaugsson Hafnarfjörður Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar lögðum við bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að hefjast handa um byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Tillagan byggir á niðurstöðum starfshóps sem lauk störfum í lok síðasta árs þar sem gert er m.a. ráð fyrir íbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu og við Heiðvang/Vesturvang í Norðurbæ. Látum verkin tala Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafnaði tillögunni, þó hún væri samhljóða tillögu sem er að finna í meirihlutasamkomulagi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn sumarið 2022. Sú tillaga dagaði hins vegar uppi nokkrum mánuðum síðar. Ekkert gerðist í málinu eða þar til Samfylkingin lagði til að stofnaður yrði fyrrgreindur starfshópur sem mótaði tillögur um uppbyggingu húsnæðis og þjónustu fyrir eldri borgara. Nú hefur starfshópurinn skilað sinni vinnu og eftir stendur að láta verkin tala. Engin íbúð fyrir eldra fólk verið byggð Öldrun þjóðarinnar er ein stærsta áskorun ríkis og sveitarfélaga sem þarf að mæta með margvíslegum hætti, t.d. með þjónustu og uppbyggingu fjölbreyttra húsnæðiskosta. Tillaga okkar jafnaðarfólks miðar að því. Það eina sem Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur hefur til málanna að leggja er að skoða málið, fara í greiningarvinnu og vinna uppbyggingaráætlun til 10 ára. Ekkert á frekar að gera. Árangurinn er því enginn - engin þjónustuíbúð fyrir eldra fólk hefur verið byggð á kjörtímabilinu. Uppbygging íbúða fyrir eldra fólk forgangsmál Stjórnmál fjalla um að veita mikilvægum málum forystu og leiða þau til lykta. Núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skortir metnað og dug, enda hafnaði hann eigin tillögu um kröftuga uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk. Það er eins og minnisvarði um hringlandann og þróttleysið sem einkennt hefur störf meirihlutans þetta kjörtímabil. Við jafnaðarfólk í Hafnarfirði munum gera það að forgangsmáli þegar við tökum við stjórn bæjarins að loknum kosningum 16. maí nk. að hefja byggingu íbúða fyrir eldri borgara í Hafnarfirði og efla þjónustu sem gerir fólki kleift að búa lengur heima hjá sér. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar