Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Eiður Þór Árnason skrifar 18. febrúar 2026 17:19 Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs langa fangelsisvist fyrir nauðgun, kynferðisbrot gegn barni, stórfellt brot í nánu sambandi og vörslu barnaníðsefnis. Brotaþoli var bróðurdóttir hans sem var tveggja til fimm ára gömul þegar brotin áttu sér stað.
Maðurinn bjó í sama húsi og faðir brotaþola, amma hennar og afi og var stelpan því reglulega inni á heimili mannsins þegar hún var hjá föður sínum aðra hverja helgi. Taldi Héraðsdómur Reykjavíkur sannað að maðurinn hafi brotið tvisvar gegn stelpunni en hann var ákærður fyrir ótilgreindan fjölda brota. Hún var rúmlega fimm ára þegar hún greindi frá brotunum og lýsti fyrst atvikunum fyrir foreldrum sínum og stjúpföður. Brot hafi átt sér stað í sófanum heima hjá ömmu hennar og hún oft sagt honum að stoppa en hann ekki hlustað. Talið er að brotin hafi átt sér stað á tímabilinu 2020 fram til 22. júní 2023. Áður hafði vaknað grunur um að steplan hefði verið beitt kynferðisofbeldi. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa í vörslum sínum ljósmyndir og myndskeið sem sýni börn nakin og á kynferðislegan hátt. Auk fangelsisvistar var hann dæmdur til að greiða brotaþola 1,5 milljónir króna í miskabætur og heildarsakarkostnað upp á um 3,3 milljónir. Reglulega passað stelpuna „Í skýrslu brotaþola í Barnahúsi kvaðst hún hafa hitt ákærða þegar hún hitti pabba sinn þar sem afi hennar og amma byggju. Keypti hann ís og nammi handa henni og D og leyfði þeim að horfa á mynd og kom fram hjá henni að stundum hefðu hún og ákærði verið ein að horfa saman á mynd. Kvaðst hún þekkja einkastaðina og spurð hvort einhver hefði komið við hennar einkastaði sagði hún ákærða hafa gert það en væri nú hættur því,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 5. febrúar. Ljóst sé að maðurinn hafi litið eftir stelpunni bæði þegar faðir hennar var ekki heima og þegar hann var sofandi. Því hafi hún í einhverjum tilvikum verið ein í pössun hjá manninum eða undir eftirliti hans. Mikil tengsl hafi verið milli ákærða og brotaþola og vitnisburður sýni að þau „hafi haldið mikið upp á hvort annað.“ Horft til þess hversu gróf brotin voru Taldi héraðsdómur sannað að ákærði hafi „snert kynfæri brotaþola með fingrum sínum og haft við hana önnur kynferðismök en samræði með því að setja fingur inn í leggöng hennar.“ Nokkrum árum fyrr höfðu einnig vaknað grunsemdir um kynferðisbrot gegn henni þegar hún var þriggja ára gömul. Við ákvörðun refsingar var litið til þess hversu gróf sum brotin voru og að þau hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir stelpuna. Þá hafi hann gróflega brotið trúnað gagnvart ungu barni sem hann hafði í sinni umsjá og haft algjöra yfirburðastöðu yfir. Auk þess hafi hann vísvitandi villt um fyrir lögreglu í upphafi rannsóknar. Að lokum var litið til þess að „mjög gróft [barnaníðs]efni og töluvert magn“ hafi fundist á tækjum hans.
Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira