Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2026 10:40 HMS Prince of Wales er flaggskip breska flotans. GettY/David Mareuil, Anadolu Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu.
Starmer sagði að flotinn myndi starfa með öðrum sveitum á svæðinu Floti þessi er iðulega skipaður af flugmóðurskipi, tveimur fylgiskipum (freigátu og tundurspilli), einum kafbáti og olíuflutningaskipi. Nákvæmlega hvenær til stendur að senda flotann á slóðir okkar Íslendinga liggur ekki fyrir. Keir Starmer:Today, I can announce that the UK will deploy our Carrier Strike Group to the North Atlantic and the High North this year, led by HMS Prince of Wales.It will operate alongside the United States, Canada, and other NATO allies, in a powerful demonstration of our… pic.twitter.com/f3CBFvKIcD— Clash Report (@clashreport) February 14, 2026 HMS Prince of Wales er annað tveggja flugmóðurskipa Breta og flaggskip breska flotans. Skipið er hannað til að bera 48 F-35B Lightning II herþotur. Það eru þotur sem geta tekið á loft, næstum því lóðrétt og þurfa ekki langar flugbrautir. Skipið getur einnig borið þyrlur og hýst 250 landgönguliða. Áhöfn skipsins er frá 700 til sextán hundruð, eftir því hver margar flugvélar eru um borð og í hvaða verkefnum áhöfnin er. Flugmóðurskipið er hannað fyrir 48 F-35B Lighting herþotur en það getur borið fleiri í neyð.EPA/RODRIGO MARIN Flugmóðurskipið, sem er rúmlega 280 metrar að lengd, var fyrst tekið í notkun í desember 2019. Auka og bæta varnir á norðurslóðum Nú stendur yfir verkefni sem kallast Arctic Sentry. Það er hluti af viðleitni Atlantshafsbandalagsins til að auka og bæta varnir bandalagsins á norðurslóðum. Til stendur að halda fjölda heræfinga á norðurslóðum á árinu og er von á ýmsum sveitum á árinu. Verkefni þetta var sett á laggirnir eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, krafðist þess að NATO tæki aukna ábyrgð á vörnum norðurslóða. Var það eftir að hann byrjaði að krefjast þess að Bandaríkin eignuðust Grænland á grunni þjóðaröryggis Bandaríkjanna og vegna meintrar ógnar frá Rússlandi og Kína.
Bretland Norðurslóðir Hernaður NATO Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira