Innlent

Þrír í haldi vegna stunguárásar í mið­bænum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögreglan handtók þrjá vegna árásarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint og er úr safni.
Lögreglan handtók þrjá vegna árásarinnar. Myndin tengist fréttinni ekki beint og er úr safni. Vísir/Kolbeinn Tumi

Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Lögregla vinni nú að því að safna að sér myndefni og gögnum um árásina.

Fjallað var um það fyrr í dag að karlmaður hefði verið handtekinn á þriðja tímanum í dag vegna árásarinnar en lögregla hafði leitað árásarmannsins frá því í nótt. Einnig kom fram að árásarmaður og þolandi væru báðir á þrítugsaldri og að ekki væri vitað um nein tengsl þeirra á milli. Sá síðarnefndi var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús í nótt en útskrifaðist þaðan snemma í morgun.

„Það eru þrír í haldi. Miðað við það sem við höfum núna eru engin stórkostleg tengsl þar á milli,“ segir Elín Agnes spurð um tengsl á milli þolanda og gerenda. 

Hún segir lögreglu vinna að því að fara yfir gögn og myndefni til að fá skýrari mynd á málið. Hún segir vitni að árásinni sem lögregla hafi rætt við.

„Eins og staðan er núna erum við með þrjá einstaklinga í haldi í kjölfar þessarar aðgerðar. Þeir voru allir handteknir í dag,“ segir Elín Agnes.

Á vef DV segir að einn þeirra handteknu sé Gabríel Douane. Gabríel Douane á að baki langan sakaferil þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur verið sakfelldur fyrir ítrekuð ofbeldisbrot auk tveggja annarra líkamsárása í fangelsinu á Hólmsheiði. Samkvæmt frétt DV losnaði hann úr fangelsi fyrir rúmri viku síðan.

Höfðu upplýsingar um hverjir hefðu verið að verki

Elín Agnes vill ekki staðfesta að Gabríel sé einn þeirra grunuðu. Hún segir lögreglu hafa haft upplýsingar og hafa fengið vísbendingar um það hverjir þeirra grunuðu væru áður en þeir voru handteknir.

Fram kom í fréttum í dag að sá grunaði hefði verið handtekinn í íbúð í Reykjavík og að hann hefði þekkst á myndbandsupptöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×