Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Lovísa Arnardóttir skrifa 7. febrúar 2026 18:04 Þau skipa fjögur efstu sæti á lista Samfylkingar í Kópavogi. Vísir/Silja Jónas Már Torfason hefur verið kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Þetta var tilkynnt á Krónikunni í Gerðasafni.
Valið stóð á milli Jónasar Más Torfasonar lögfræðings og Gunnars Gylfasonar formanns Samfylkingarinnar í Kópavogi. Eydís Inga Valsdóttir var kjörin í annað sætið og í það þriðja Hákon Gunnarsson, varabæjarfulltrúi flokksins. Sólveig Skaftadóttir var kjörin í fjórða sæti listans. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis gaf öllum frambjóðendunum blóm og sagði við viðstadda að það þótti rétt að láta utanbæjarkonu veita verðlaunin sem uppskar hlátur úr salnum. Alls voru sex frambjóðendur sem buðu fram krafta sína. 1703 voru á kjörskrá en á áttunda hundrað atkvæði voru greidd. Árið 2022 voru greidd 314 atkvæði, svo rúmlega tvöfalt fleiri greiddu atkvæði í ár. Fjölda atkvæða var vel fagnað í salnum og sagði kjörstjórnin að um væri að ræða sankallaða lýðræðisveislu. Fjöldi þingmanna flokksins voru viðstaddir, þar á meðal Alma Möller, ráðherra og móðir Jónasar Más, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Dagbjört Hákonardóttir og Víðir Reynisson. „Ég þakka traustið hjartanlega,“ segir Jónas Már við fjölmenna hópinn sem er varsaman kominn á Krónikunni. Þá þakkaði hann kjörstjórninni og þeim sem hafa lagt honum lið í þessum fyrstu pólitísku skrefum. Vill endurskoða Kópavogsmódelið „Tilfinningin er sú að það er töluverður andi hjá jafnaðarmönnum í Kópavogi. Maður finnur það þegar maður talar við kjósendur og flokksmenn að þeir binda miklar vonir við okkur í vor,“ segir Jónas í samtali við blaðamann á staðnum og að það sé skýr vilji til að breyta um meirihluta í bænum. Jónas Már segir leikskólamálin ofarlega í hans huga. Hann vilji endurskoða gjaldskrá og Kópavogsmódelið eins og það er í dag. Foreldrar sem nýti kerfið með hefðbundnum hætti borgi dýrustu leikskólagjöldin á landinu. „Þessu hefur verið lýst af foreldrum, í samtölum við mig, sem barnaskatti, og ég get ekki annað en tekið undir það. Þetta er algjör grundvallarþjónusta við barnafjölskyldur í bænum og að við séum að velta kostnaði yfir á fjölskyldur er ekki rétt forgangsröðun,“ segir hann og að það sé hans erindi, og flokksins, að koma með nýja forgangsröðun. Boðberi jafnaðarstefnu Kristrúnar Hann segist hrífast af jafnaðarstefnu Kristrúnar Frostadóttur og hafi viljað vera boðberi hennar stefnu í Kópavogi. Hann segir allt opið hvað varðar meirihlutastarf og hann útiloki ekki neitt en þegar hann boði nýja forgangsröðun sé ljóst að það þyrfti ýmislegt að gerast svo hann myndi vinna með Sjálfstæðisflokknum. „En annars er það samtal fyrir kosninganóttina og eftir hana,“ segir hann og að hann geti vel ímyndað sér að vinna með Framsókn eða Viðreisn. „Ég held það séu ýmis spennandi mynstur hérna og það er klárlega allt á borðinu. Við útilokum ekki neitt.“ Vakning meðal jafnaðarmanna í Kópavogi Hákon hefur verið varabæjarfulltrúi flokksins síðasta kjörtímabilið en Bergljót Kristinsdóttir oddviti ætlar ekki að gefa kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Hákon segist ánægður með þriðja sætið og les stöðuna þannig að flokkurinn muni fá að minnsta kosti þrjá kjörna fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs. „Það er löng hefð fyrir sögu Samfylkingarinnar og forvera hennar í bænum. Það er mikil vakning meðal hennar í Kópavogi,“ segir Hákon. Fréttin hefur verið uppfærð.
Samfylkingin Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira