Hvað getur frístundaheimili gert fyrir barnið þitt? Gísli Ólafsson skrifar 5. febrúar 2026 09:02 Yfir 90% barna í fyrsta og öðrum bekk í Reykjavík fara í frístundaheimili eftir að skóla lýkur og sambærilega sögu má segja um mörg önnur sveitarfélög. Stór hluti barna í þriðja og fjórða bekk sækir einnig starfið Frístundaheimili eins og við þekkjum þau í dag eiga ekki langa sögu en hafa tekið stórum framfaraskrefum á síðustu árum. Starfið byggir á skýrum gæðaviðmiðum og er leitt af fagfólki í tómstunda- og félagsmálafræðum. Það sem þó einkennir frístundaheimilin er fjölbreytt starfsfólk á öllum aldri sem sinnir börnunum af alúð og nýtir ólíka styrkleika og áhugasvið sitt til þess að víkka sjóndeildarhring barnanna með fjölbreyttri dagskrá. Þar er boðið upp á margvíslegt skapandi starf í myndlist, tónlist og leiklist, frjálsan leik í fjölbreyttu umhverfi ásamt skipulögðum leik með verkfærum sem gefur starfsfólki tækifæri til þess fylgjast vel með samskiptum barnanna, stíga inn í og styðja þegar þörf er á. Fagstarf frístundaheimila er þó töluvert meira en það sem sést við fyrstu sýn. Starfsfólk frístundaheimila nýtir sér til dæmis verkfæri Frístundalæsis til þess að nýta leik og starfsemina til þess að styðja við læsi barna, kynna fyrir þeim fjölbreyttan orðaforða og efla málnotkun og skilning. Frístundalæsi er margverðlaunað verkefni sem starfsfólk frístundaheimila um allt land nýtir sér og sækir einnig reglulega lærdómssamfélag til þess að deila reynslu og læra af öðrum. Starfsfólk margra frístundaheimila kortleggur reglulega félagslega stöðu barnahópsins og nýtir þar hugmyndafræði Vöndu Sigurgeirsdóttur um vináttufærni. Hugmyndafræðin er í grunninn forvarnarstarf gegn einelti þar sem lögð er áhersla á að efla félagsfærni barna og samvinnu. Starfsfólk frístundaheimilanna staðsetur þá allan barnahópinn á kvarða eftir mati þeirra á félagslegri stöðu barnanna. Starfsfólk veitir svo börnunum viðeigandi stuðning miðað við stöðuna hverju sinni og dregur þannig úr líkum á því að barn einangrist félagslega. Mörg börn þurfa stuðning eða leiðbeiningar þegar kemur að félagsfærni sem starfsfólk frístundaheimila getur gefið í gegnum leik og skipulagt frístundastarf. Frístundaheimili bjóða markvisst upp á fjölbreytt viðfangsefni sem ætlað er að kynna fjölbreyttar tómstundir fyrir börnunum sem þau geta tekið sér fyrir hendur í frítíma sínum. Starfsfólki frístundaheimila er uppálagt að nýta áhugamál sín og kynna þau fyrir barnahópnum, hvort sem það eru íþróttir, myndlist, leiklist, teiknimyndasögur, spil og leikir, bakstur eða hvað annað sem börn geta tekið sér fyrir hendur í frítíma sínum. Þetta klúbbastarf er mikilvægur þáttur í fagstarfi frístundaheimila sem ætlað er að opna hug barnanna og gefa þeim tækifæri á að kynnast á eigin skinni hvernig þau geta nýtt frítíma sinn á uppbyggilegan máta. Mörg börn kjósa að sækja í leiki eða umhverfi sem þau þekkja og kunna, en starfsfólk frístundaheimila hvetja börnin sífellt til að prófa sig áfram og læra nýja hluti. Barnalýðræði er stór hluti af fagstarfi frístundaheimila en þar eru börnin hvött til þess að tjá sig um starfið og hafa áhrif á það sem þau geta, þegar þau geta. Hugmyndakassar, kosningar og barnaráð eru meðal þeirra leiða sem frístundaheimili nýta til þess að efla lýðræðisvitund barnanna og efla trú þeirra á að þau geti haft áhrif á umhverfi sitt, kjósi þau það. Dæmi eru um kosningar um hvaða leikföng er keypt á frístundaheimilið, hvaða mat þau fá í síðdegishressingu, hvernig halda skuli upp á afmælisdaga, hvað frístundaheimili skulu heita, hvað rými í frístundaheimilinu skuli heita og margt fleira. Frístundaheimili eru skilgreind sem þjónustuveitendur á fyrsta stigi í lögum um farsæld barna. Þar gegna frístundaheimili lykilhlutverki eins og aðrar stofnanir sem vinna með eða fyrir börn í að vinna að farsæld þeirra. Frístundaheimili vinna með grunnskólum, leikskólum, íþróttafélögum, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd eða hverjum þeim sem koma að máli barns til þess að tryggja samþætta þjónustu og stuðning og styðja við þarfir barnsins hverju sinni. Þar er veittur einstaklingsbundinn og snemmtækur stuðningur í samráði við aðra þjónustuveitendur. Frístundaheimili eru gríðarlega mikilvægur þáttur í jákvæðri skólabyrjun og með góðu samstarfi við leikskóla getur aðlögun frá leikskóla yfir í grunnskóla verið mjög jákvæð upplifun fyrir flest börn með þátttöku í starfi frístundaheimilisins. Þetta á sérstaklega við börn sem koma úr öðru hverfi eða þekkja fáa í bekknum áður en skóli hefst. Frjáls leikur undir vökulu auga starfsfólks frístundaheimila gefur gott tækifæri til þess að mynda vinatengsl og finna sig sem hluti af hóp. Þar getur starfsfólk frístundaheimila leikið lykilhlutverk í að koma auga á börn sem standa höllum fæti eða þurfa stuðning til þess að fóta sig í krefjandi aðstæðum. Starfsfólkið er í lykilstöðu til þess að veita þeim öryggi og hlýju og styðja þau í því að mynda vinatengsl við jafningja. Starfsfólk frístundaheimila er í góðum tengslum við foreldra og fjölskyldur barnanna og geta gefið þeim góða innsýn í félagslega stöðu og líðan barnanna. Þessi daglegu samskipti og góðu tengsl eru lykilþáttur í snemmtæku inngripi ef þörf er á. Hvernig gengur barninu að tengjast öðrum börnum? Hvernig líður barninu í starfinu? Hvaða verkefni er barnið að fást við í starfinu? Þetta geta verið lykilspurningar fyrir foreldra sem gengur illa að fá upplýsingar frá barninu sjálfu eða finna fyrir óöryggi um líðan barnsins. Fagfrí, landssamtök um fagþróun frístundaheimila, hefur staðið fyrir fundaröð um gæðaviðmið frístundaheimila þar sem stjórnendur frístundaheimila hafa komið saman til þess að ræða um það sem vel er gert í fagstarfinu og deila þannig hugmyndum og verkfærum sín á milli. Það einkennir alltaf samtal starfsfólks frístundaheimila að þau brenna fyrir starfseminni og leggja hart að sér að bjóða börnunum okkar upp á skapandi viðfangsefni í öruggu umhverfi sem einkennist af hlýju og áhuga fyrir einstaklingnum. Frístundaheimili eru grunnþjónusta sem öll börn eiga rétt á að sækja og njóta. Fagstarf frístundaheimila kemur þó ekki af sjálfu sér og forstöðumenn frístundaheimila þurfa bæði undirbúningstíma og faglegan stuðning kollega sinna til þess að efla starfið. Til þess þarf virðingu fyrir faglegri sérstöðu frístundastarfs og þeirri grunn hugmynd að frístundastarf er hálf formlegt nám sem byggir á skipulögðum starfsháttum og er leitt áfram af fagfólki. Höfundur er formaður Fagfrí, landssamtök um fagþróun frístundaheimila. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frístund barna Börn og uppeldi Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar