Frítt í Strætó og sund – Með fólkið í forgrunni Ellen Calmon skrifar 20. janúar 2026 11:01 Grunngildi jafnaðarmennskunnar er að jafna aðstöðu og tækifæri barna. Börn eru skilgreind „börn“ til 18 ára aldurs og það finnst mér að eigi að virða í allri reglusetningu og gjaldskrá. Í 1. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir „Í samningi þessum merkir barn hvern þann einstakling sem ekki hefur náð 18 ára aldri, nema hann nái fyrr lögræðisaldri samkvæmt lögum þeim sem hann lýtur.“ Barnasáttmálinn hefur lagalegt gildi á Íslandi eins og sjá má hér: https://www.althingi.is/altext/stjt/2013.019.html Ég vil að börn fái frítt í Strætó og sund. Af hverju frítt í Strætó? Með því að bjóða börnum frítt í Strætó erum við að ala upp nýja kynslóð sem nýtir mögulega frekar almenningssamgöngur en ella. Við erum að ala upp kynslóð sem er þá líklegri til að nýta Borgarlínuna. Við erum mögulega að sporna við því að 17 ára gömul börn leggi sumarhýruna sína fyrir til að kaupa fyrsta bílinn með tilheyrandi viðvarandi kostnaði fyrir þau eins og vera ber við rekstur bíls. Við erum þannig mögulega að draga úr aukningu bílaumferðar á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur svo einnig jákvæð áhrif á loftslagsmálin. Við erum að draga úr skutli og börnin verða sjálfstæðari. Við erum að styðja við fjölskyldur sem hafa minna á milli handanna og börnin þeirra búa þá að sama aðgengi að Strætó og önnur börn, því það er ekki sjálfsagt að foreldrar hafi efni á Strætókorti fyrir börnin sín. Það má gefa sér að foreldrar sem ekki hafa efni á árskorti í Strætó skutli frekar, þó að skutl sé mögulega dýrara en Strætó þá verður það frekar fyrir valinu því það krefst ekki stórra eins skiptis útgjalda. Það að bjóða börnum frítt í Strætó hefur því víðtæk jákvæð áhrif á sjálfstæði barna, útgjöld foreldra og loftslagið svo eitthvað sé nefnt. Af hverju frítt í sund? Sundlaugarmenning á Íslandi var nýlega staðfest sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns á skrá UNESCO sem er æðsta viðkenning á sviði lifandi hefða. Í sundi mætist fólk af öllum stærðum og gerðum, þar koma kynslóðirnar saman til líkamsræktar og samveru. Sundið styður því við líkamlega, andlega og félagslega heilsu og eru laugarnar skilgreindar sem almenningsrými og almenningsgæði sem borgarbúar geta notið í þeim 8 laugum sem eru í Reykjavíkurborg. Þá er sundið einn af fáum stöðum þar sem símar eru ekki leyfðir og fólk getur komið saman, spjallað eða hvílt hugann og stundað núvitund. Unglingar hafa margir hverjir gaman að því að skreppa í sund með vinahópnum og njóta saman, leika, busla og spjalla. Þeir geta jafnvel varið mörgum klukkustundum í sundi án síma. Koma þreyttir og glaðir heim. Samvera í sundi stuðlar að frekari tengslum barna í milli og kynslóðatengslum enda þekkt að fjölskyldur fara gjarnan saman í sund til að eiga fjölskyldustund. Með því að bjóða börnum í sund erum við að bjóða upp á heilnæma tómstund, hreyfingu og vellíðan sem öll börn hefðu þá aðgengi að og sömu möguleika á þátttöku, vellíðan, óháð bakgrunni, efnahag, fötlun, tungumáli, kyni eða fjölskyldugerð. Með því að bjóða börnum frítt í sund erum við að fylgja því sem kemur fram í 31. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en þar segir „Aðildarríki viðurkenna rétt barns til hvíldar og tómstunda, til að stunda leiki og skemmtanir sem hæfa aldri þess, og til frjálsrar þátttöku í menningarlífi og listum.“ Ég vil byggja borg þar sem fólkið er sett í forgrunn og þar eru börnin alltaf fyrst! Höfundur er formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og gefur kost á sér í 3.-5. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar sem fer fram rafrænt á heimasíðu Samfylkingarinnar nk. laugardag 24. janúar. https://ellencalmon.is/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Reykjavík Borgarstjórn Strætó Sund Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar