Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar 16. október 2026 11:48 Ég hef lengi fundið fyrir sterkri þörf til að halda áfram að þroskast. Að komast lengra, uppgötva eitthvað nýtt, skilja meira og öðlast dýpri sýn á sjálfan mig og lífið. Stundum hef ég velt því fyrir mér hvort þessi þörf sé merki um að ég sé ekki nógu sáttur við sjálfan mig, en sú skýring hefur aldrei passað. Ég hef sjálfstraust og mér líður vel með þann mann sem ég er orðinn. Samt get ég ekki hugsað mér að hætta að læra og vaxa. Sú tilhugsun að eiga einfaldlega að sætta sig við að vera eins og maður er það sem eftir er ævinnar er mér óbærileg. Í mínum huga er stöðnun einhvers konar dauði. Fyrir skömmu rakst ég á hugmyndir Carls Jung um síðari hluta ævinnar. Hann taldi að við gætum ekki lifað síðari hluta lífsins eftir sömu viðmiðum og þeim fyrri. Á yngri árum snýst lífið að miklu leyti um að byggja upp sjálfsmynd, finna sér stað í samfélaginu og koma einhverju til leiðar, en þegar líður á ævina breytast áherslurnar og við þurfum að læra að skilja hver við erum handan þeirra hlutverka sem hafa skilgreint okkur. Mér fannst margt í þessu áhugavert en ég fann líka fyrir ákveðinni mótstöðu. Mér finnst ég enn eiga svo margt eftir ólært og í fyrstu skildi ég Jung þannig að síðari hluti ævinnar ætti að snúast um að hægja á og sætta sig við stöðuna. Þegar ég hugsaði málið betur áttaði ég mig þó á því að mótstaða mín snerist líklega fremur um minn eigin skilning á þroska. Ég var að rugla saman því að vera sáttur við sjálfan mig og því að vera búinn að verða allt sem ég gæti orðið. Þetta tvennt þarf ekki að rekast á. Ég get verið sáttur við þann mann sem ég er í dag og samt haft löngun til að verða vitrari á morgun. Sá þroski snýst ekki eingöngu um að ná einhverju fram eða sanna sig út á við, heldur líka um að hefur áhrif á hvernig ég hugsa, finn og hegða mér. Ég hef upplifað slíka breytingu áður. Í sporavinnunni fór ég smám saman að sjá hvernig óttinn hafði áhrif á ákvarðanir mínar og samskipti við annað fólk: óttinn við að missa eitthvað sem mér þótti mikilvægt og jafnvel óttinn við að öðlast eitthvað sem ég vissi ekki hvernig ég ætti að takast á við. Ég áttaði mig á því að óttinn gat stjórnað mér án þess að ég gerði mér grein fyrir því. Sú uppgötvun breytti ekki öllu á einni nóttu, en hún gaf mér nýja leið til að skilja sjálfan mig og með tímanum öðlaðist ég frelsi sem mér þykir enn vænt um. Þess vegna get ég ekki hugsað mér að hætta að leita. Ég veit af eigin reynslu að nýr skilningur getur breytt því hvernig maður lifir. En það er önnur hlið á þessari löngun sem ég á erfiðara með að átta mig á. Þegar ég uppgötva eitthvað nýtt vaknar gjarnan þörf fyrir að miðla því. Mig langar að skrifa, halda fyrirlestra og jafnvel gefa út bók, koma einhverju til skila sem gæti haft merkingu fyrir annað fólk. Samt gerist það furðulega oft að um leið og hugmyndin fer að taka á sig raunverulega mynd birtist óttinn. Það sem kemur mér mest á óvart er að ég óttast ekki fyrst og fremst að aðrir verði ósammála mér. Ég óttast frekar að hafa sjálfur látið sannfæra mig um eitthvað sem reynist ekki rétt. Að standa frammi fyrir fólki og tala af sannfæringu án þess að hafa í raun skilið málið nógu vel. Ég vil vera heiðarlegur í því sem ég segi og skrifa, en ég vil líka geta treyst eigin dómgreind og tala ekki af meira öryggi en þekking mín gefur tilefni til. Þetta vekur spurningu um hvenær maður veit í raun að maður hafi tileinkað sér eitthvað. Ég veit það sjaldnast fyrir fram. Ég get lesið og velt hugmyndum fyrir mér án þess að gera mér grein fyrir hvað hefur setið eftir. Stundum þarf óvænta spurningu eða samtal til að ég átti mig á því hvað ég hef í raun lært. Þegar ég var gestur hjá Sölva Tryggva í hlaðvarpinu hans upplifði ég einmitt þetta. Eftir samtalið var ég ekki sáttur við ýmis svör sem ég hafði gefið og fannst ég hafa berskjaldað mig. Ég átti erfitt með að láta þetta vera og þurfti að horfa á þáttinn aftur. Það sem kom mér á óvart var að þegar ég hlustaði á sjálfan mig heyrði ég ýmislegt sem mér fannst skynsamlegt, hugsanir sem ég hafði ekki einu sinni gert mér grein fyrir að ég hefði orðað. Ég hafði svarað spurningunum án þess að vita nákvæmlega hvert hugsunin myndi leiða mig, en þegar ég leyfði mér að tala heiðarlega höfðu þekkingin, reynslan og hugsanirnar einhvern veginn fundið sér farveg. Ég þurfti eiginlega að heyra sjálfan mig segja hlutina til að átta mig á því hvað ég vissi. Á slíkum stundum hef ég ekki endilega öðlast meiri fróðleik, heldur þorað að segja það sem ég raunverulega hugsa án þess að reyna að stjórna því hvernig það hljómar í eyrum annarra. Þegar ég leyfi mér að sleppa þeirri stjórn finn ég fyrir frelsi. Ég þarf ekki að vera viss um að allt sem ég segi sé rétt, en ég þarf að vera heiðarlegur um það sem ég hugsa og tilbúinn að endurskoða það ef ég sé ástæðu til. Samt er ég ekki laus við þörfina fyrir viðurkenningu. Mig langar að skrifa bók til að gefa öðrum eitthvað af því sem ég hef lært, en um leið langar mig til að bókin verði lesin og að fólk kunni að meta hana. Þegar ég birti grein og hún fær góðar viðtökur finn ég fyrir stolti, en þegar viðbrögðin eru engin getur komið yfir mig undarlegt tómarúm og efi um eigið gildi. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort þessi þörf eigi sér eldri rætur. Þegar ég lít til baka sé ég að ást og viðurkenning voru ekki alltaf eitthvað sem ég upplifði sem sjálfsagt; stundum fannst mér þær háðar því hvernig ég stóð mig eða hvort ég uppfyllti væntingar annarra. Ég veit ekki hversu mikið sú reynsla stýrir viðbrögðum mínum í dag, en það er merkilegt að maður getur haft sjálfstraust og samt verið svona viðkvæmur fyrir áliti annarra. Að skilja hvers vegna maður finnur eitthvað er nefnilega ekki það sama og að hætta að finna það. Maður getur séð gamalt mynstur skýrt og jafnvel brosað að því, en samt fundið hvernig það tekur við sér um leið og eitthvað skiptir mann máli. Hvers vegna er ég þá alltaf að reyna að verða eitthvað meira? Er það til að sanna eigið gildi eða af einlægri forvitni um lífið? Svarið er líklega hvort tveggja. Ég þarf ekki að gera ráð fyrir að allar mínar langanir eigi sér eina rót. Hættan er hins vegar sú að ég noti þetta sem afsökun til að bíða, að ég sannfæri sjálfan mig um að ég þurfi að lesa aðeins meira, skilja aðeins betur og undirbúa mig aðeins lengur áður en ég þori að stíga fram. En sú fullkomna vissa kemur aldrei. Ætli það sé ekki einmitt þarna sem ég þarf að halda áfram að þroskast: ekki með því að safna meiri þekkingu í einrúmi, heldur með því að leyfa mér að lifa og framkvæma á meðan ég er enn að læra. Að skrifa bókina án þess að vita fyrir fram hvort hún verði merkileg, halda fyrirlesturinn án þess að þurfa að hafa svar við öllum hugsanlegum spurningum og segja það sem ég trúi að sé rétt, en viðurkenna jafnframt þegar ég veit ekki nóg. Ég hef stundum haldið að frelsið fælist í því að losna við óttann, en reynsla mín hefur kennt mér annað. Þegar ég get viðurkennt að mig langi til að vera metinn, að ég óttist að hafa rangt fyrir mér og að ég viti ekki alltaf hvert ég er að stefna, án þess að þurfa að fela það fyrir öðrum eða sjálfum mér, finn ég fyrir frelsi. Ekki vegna þess að óttinn sé horfinn, heldur vegna þess að ég þarf ekki lengur að láta eins og hann sé ekki til staðar. Ég veit ekki hvort ég verði nokkurn tíma búinn að verða allt sem ég get orðið, og ég vona eiginlega að svo verði ekki. Stundum er nóg að treysta því sem maður hefur þegar lært, þora að láta á það reyna og sjá hvað gerist. Ég vil enn verða eitthvað meira. En ég vil líka geta verið sá sem ég er á meðan. Höfundur er mannvinur og kennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun