Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. janúar 2026 08:10 Tíu tonn af kókaíni komin til hafnar í Santa Cruz á Tenerife, spænsku eyjunni sem Íslendingar sækja mikið. Policía Nacional Lögregluyfirvöld á Spáni hafa lagt hald á tæplega tíu tonn af kókaíni, sem voru falin innan um saltfarm flutningskips við Kanarí-eyjar.
Löggæsluhópur sem hefur rannsakað umfangsmikla kókaínflutninga frá Suður-Ameríku til Evrópu er sagður hafa bent á skipið, sem var að koma frá Brasilíu. Skipið var um það bil 535 kílómetra frá Kanarí-eyjum þegar sérsveit réðist um borð og lagði hald á um það bil 300 pakkningar af kókaíni, sem höfðu verið grafnar í sendingu af salti. Þrettán voru handteknir og skipið, sem hafði orðið uppiskroppa með olíu, dregið til hafnar í Tenerife. Aðgerðin var samstarfsverkefni lögregluyfirvalda á Spáni, í Brasilíu, Bandaríkjunum og Bretlandi, auk yfirvalda í Frakklandi og Portúgal. Lögregluyfirvöld á Spáni segja um að ræða stórt högg fyrir alþjóðleg glæpasamtök. Þá er þetta mesta magn kókaíns sem þau hafa lagt hald á á sjó en árið 2024 fundust þrettán tonn af efninu í gámasendingu frá Ekvador. 🚩Interceptado en aguas del #Atlántico un buque mercante que ocultaba casi 10 toneladas de #cocaína entre un cargamento de sal 👉Se trata de la mayor aprehensión de cocaína en alta mar realizada por @policia ⛵️👮♂️El #GEO abordó el buque con destino a #Europa procedente de… pic.twitter.com/XOVYPFwlds— Policía Nacional (@policia) January 12, 2026
Spánn Brasilía Fíkniefnabrot Kanaríeyjar Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Sjá meira