Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. desember 2025 20:47 „Reyndar stærsta olíuflutningaskip sem hefur nokkurn tímann verið tekið yfir.“ AP Bandarískt herlið hefur tekið stjórn á olíuflutningaskipi undan ströndum Venesúela. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta á blaðamannafundi og sagði von á frekari árásum.
Um er að ræða enn eina stigmögnunina í egningarherferð Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hafa þegar drepið tæplega hundrað manns í loftárásum á smábáta sem stjórnvöld saka um að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Nýverið tilkynnti hann einnig að Bandaríkin hefðu lokað lofthelgi Venesúela. „Við höfum tekið olíuflutningaskip yfir undan ströndum Venesúela, stórt skip, mjög stórt, það stærsta sem hefur nokkurn tímann verið tekið yfir. Og það er fleira í gangi, þið munuð sjá það síðar og munið tala um það síðar við aðra,“ sagði hann við blaðamenn í Hvíta húsinu í kvöld. Tveir ónefndir embættismenn sem fréttaveitan Reuters ræddi við sögðu að bandaríska landhelgisgæslan hefði framkvæmt árásina en ekki er ljóst um hvaða skip ræðir eða hvar árásin átti sér stað. Olía er helsta útflutningsvara Venesúela sem býr jafnframt yfir heimsins mesta jarðolíuforða. Helsti kaupandi venesúelanskrar olíu eru Kínverjar en líkt og heimsmiðlarnir taka fram er óljóst í hvaða tilgangi árásin var gerð.
Bandaríkin Venesúela Donald Trump Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Sjá meira