Dómsmál á hendur starfsmanni Múlaborgar hafið Árni Sæberg skrifar 12. nóvember 2025 13:39 Leikskólinn Múlaborg er í Ármúla. Vísir/Anton Brink Ákæra á hendur starfsmanni leikskólans Múlaborgar, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn börnum á leikskólanum, var þingfest í morgun. Afstaða hans til sakargiftanna liggur ekki fyrir. Þá liggur efni ákærunnar ekki fyrir að svo stöddu.
Þetta staðfestir Bjarni Hauksson, verjandi mannsins, í samtali við Vísi en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá þingfestingunni. Bjarni segist ekkert geta gefið upp um afstöðu mannsins til sakargifta þar sem málið er háð fyrir luktum dyrum. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skulu þinghöld háð í heyranda hljóði en dómari getur þó ákveðið, að eigin frumkvæði eða eftir kröfu ákæranda, sakbornings eða brotaþola, að þinghald fari fram fyrir luktum dyrum, telji hann það nauðsynlegt. Algengasta ástæða þess að þinghöldum er lokað er til þess að vernda nafnleynd og hagsmuni brotaþola. Ríkisútvarpið greinir sömuleiðis frá því að starfsmaðurinn hafi ekki mætt í dómsal í morgun heldur hafi hann upplýst dóminn um afstöðu sína í gegnum fjarfundarbúnað. Sem áður segir liggur ekki fyrir að svo stöddu fyrir hvað maðurinn sætir ákæru. Fram kom í fréttum í byrjun októbermánaðar að maðurinn, sem hafði verið leiðbeinandi á Múlaborg í um tvö ár þegar málið kom upp, sé grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum. Maðurinn var handtekinn um 12. ágúst þegar grunur um brot kviknaði í kjölfar þess að barn á leikskólanum, sem varð fyrir meintu kynferðisbroti, greindi foreldrum sínum sjálft frá atvikinu.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Reykjavík Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira