Ekki gefinn afsláttur á gjaldskyldu í snjókomu Lovísa Arnardóttir skrifar 29. október 2025 14:02 Stöðumælavörður við vinnu við Hallveigarstíg í miðborg Reykjavíkur um hádegisbil í gær. Aðsend Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir Bílastæðasjóð hafa sektað í gær eins og aðra daga. Hafi fólk athugasemdir við sektir sem það fékk í gær geti það sent beiðni um endurupptöku máls á Bílastæðasjóð.
Hún segir samgöngukerfið í ágætu standi eins og er en það muni taka tíma fyrir öll kerfi borgarinnar að komast aftur í reglulega dagskrá eftir gærdaginn. „Staðan í samgöngum er eins og við má búast þegar við fáum svona áhlaup á okkur,“ segir hún og að þau vildu gjarnan vilja töfrasprota til að bregðast hraðar við en að það sé því miður ekki möguleiki. „Við þekkjum það þegar fyrsti snjórinn kemur, sama hvort það er í október eða nóvember, og hann er oft minni en þetta, að það fer allt pínu úr skorðum en svo slípast þetta til. Þetta gengur ágætlega,“ segir hún en ítrekar þó að lögreglan hafi betri yfirsýn yfir stöðuna á götunni. Markmið að allir komist leiðar sinnar Guðbjörg Lilja segir að markmið með því að fylgjast með því að fólk leggi ekki ólöglega sé að tryggja að ökumenn, gangandi og hjólandi komist leiðar sinnar með öruggum hætti. Hún segir ekki gefinn afslátt af því að leggja ólöglega en hafi fólk lagt bílum sínum löglega áður en það byrjaði að snjóa í gær, verði það ekki vandamál. „Það er ekkert sem heitir að vera of lengi í stæði, nema á gjaldsvæði 1, þar er takmarkið þrír tímar,“ segir hún og að það sé ótengt snjókomu hvort að gjaldskyldan sé á. Á myndinni eru Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir samgöngustjóri og Rakel Elíasdóttir deildarstjóri Bílastæðasjóðs þegar þær fengu viðurkenningu fyrir umbreytingu á framkvæmd eftirlits með stöðvunarbrotum.Reykjavíkurborg „Það er alltaf gjaldskylda nema á einhverjum ákveðnum dögum eins og nýársdag eða eitthvað svoleiðis,“ segir hún og að snjókoman í gær sé ekki tilefni til að gefa afslátt af gjaldskyldu. Ekkert frekar en það sé annars konar vont veður eða fólk fari á barinn. „Gjaldskyldan er alltaf í gildi.“ Guðbjörg Lilja bendir auk þess á að í gjaldsvæði 1, þar sem er tímatakmörkun á lagningu í stæði, séu flest stæðin á upphituðum götum og því ólíklegt að fólk hafi lent í verulegum vandræðum í gjaldskyldu 1.
Snjómokstur Reykjavík Umferð Bílastæði Neytendur Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira