Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Lovísa Arnardóttir skrifar 21. september 2025 07:23 Allir fangaklefar voru fullir eftir nóttina. Vísir/Vilhelm Einn var handtekinn vegna líkamsárásar í Hafnarfirði og tilkynnt um mann með sveðju utandyra í Kópavogi. Tveir voru handteknir sem óku undir áhrifum á lögreglubíl og reyndu svo að skipta um sæti.
Mikill erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Alls voru skráð frá klukkan 17 til fimm í nótt 156 mál voru skráð hjá lögreglu. Allir fangaklefar eru fullir samkvæmt dagbók lögreglunnar. Í dagbókinni kemur fram að lögregla hafði afskipti af mörgum aðilum vegna ölvunar, sérstaklega á stöð 1 sem er á Hverfisgötu og sinnir miðborg og hverfum í kring. Í dagbók kemur fram að lögregla hafi sem dæmi stöðvað „peruölvaðan ökumann“ í hverfi 108 sem ók bíl sínum á annan bíl. Ökumaðurinn reyndist svo án ökuréttinda og var vistaður í fangaklefa, Þá var einn handtekinn í miðborginni vegna þjófnaðar en reyndist síðar vera eftirlýstur og var einnig vistaður í fangaklefa. Þá voru tveir handteknir í miðborginni vegna húsbrots. Lögregla hafði einnig afskipti af ungmenni í hverfi 104 sem var til töluverðra vandræða samkvæmt dagbók. Það var í annarlegu ástandi, gaf ekki upp rétt nafn og réðst að lögreglumönnum og hrækti á þá. Í dagbók kemur fram að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra. Þá voru tveir handteknir sem óku á lögreglubíl og reyndu svo að skipta um sæti til að villa um fyrir lögreglunni. Báðir voru undir áhrifum og voru vistaðir í fangaklefa. Þá var nokkur fjöldi vistaður í fangaklefa vegna ölvunar. Á öðrum lögreglustöðvum var einnig töluverður erill. Í Hafnarfirði var einn handtekinn fyrir líkamsárás og tilkynnt um innbrot í verslun. Í Kópavogi var tilkynnt um mann sem var vopnaður sveðju. Í dagbók kemur fram að hann fannst ekki við leit. Þá var einn handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna eignarspjalla í Grafarvogi.
Lögreglumál Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira