Leiðtogar Hamas sagðir þokast nær því að samþykkja vopnahlé Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. júlí 2025 10:10 Íbúar Gasa búa við verulegan skort og stöðugan ótta við loftárásir Ísraelsmanna. AP/Jehad Alshrafi Leiðtogar Hamas funduðu í Istanbúl í gær til að ræða tillögur að vopnahléi og gáfu frá sér yfirlýsingu um að þeir ættu einnig í viðræðum við aðra hópa um sameiginlegt svar.
Samtökin eru sögð nálægt því að samþykkja vopnahlé en vilja tryggingu fyrir því að tímabundið hlé á átökum muni sannarlega leiða til þess að Ísraelsmenn láti alfarið af árásum sínum. Ísraelsstjórn hefur fyrir sitt leyti gefið í á síðustu dögum og meðal annars gert fjölda loftárása sem eru sagðar hafa leitt til dauða yfir 250 Palestínumanna, þar á meðal margra barna og kvenna. Erlendir miðlar hafa eftir heimildarmönnum að jafnvel harðlínumenn innan Hamas horfist nú í augu við nauðsyn þess að ganga að samningum við Ísrael, ef ekki nema til að gefa samtökunum tækifæri til þess að skipuleggja sig og ná vopnum sínum á ný. Yfir 6.000 manns hafa látist í árásum á Gasa eftir að síðasta vopnahlé fór út um þúfur í mars síðastliðnum og þá hefur algjört ófremdarástand skapast á svæðinu vegna skorts á hjálpargögnum. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðbrögð Hamas við vopnahléstillögum myndu koma í ljós innan 24 klukkustunda. Skoðanakannanir í Ísrael sýna mikinn stuðning við vopnahlé og möguleikar á því eru taldir hafa aukist þar sem Benjamin Netanyahu þykir hafa styrkt pólitíska stöðu sína og er því mögulega viljugri til hætta aðgerðum.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Hernaður Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira