Leik lokið: Breiða­blik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Blikar unnu frábæran sigur í kvöld þar sem Tobias Thomsen skoraði tvennu og Viktor Örn Margeirsson eitt.
Blikar unnu frábæran sigur í kvöld þar sem Tobias Thomsen skoraði tvennu og Viktor Örn Margeirsson eitt. vísir/Diego

Víkingar eru nú aðeins með eins stigs forskot á Blika á toppi Bestu deildar karla í fótbolta eftir að Breiðablik vann frábæran 3-1 sigur í uppgjöri liðanna á Kópavogsvelli í kvöld, í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

Tobias Thomsen skoraði tvö marka Blika og lagði upp eitt fyrir Viktor Örn Margeirsson. Víkingar náðu að minnka muninn í lokin þegar Matthías Vilhjálmsson komst inn í sendingu Antons Ara Einarssonar, markvarðar Blika.

Skot í stöng

Víkingur fékk fyrsta dauðafæri leiksins eftir slaka hreinsun Breiðabliks á 8. mínútu. Boltinn skoppaði fyrir Helga Guðjónsson sem kontraði hann í fyrstu snertingu og hitti stöngina.

Breiðablik svaraði hins vegar fljótt fyrir sig og skapaði sitt fyrsta alvöru færi eftir rúman stundarfjórðung. Eftir góða fyrirgjöf Ágústs Orra skallaði Tobias Thomsen boltann fyrir markið á Viktor Karl, en skot hans var varið.

Tveggja marka forysta tekin

Breiðablik braut ísinn aðeins rúmri mínútu síðar. Valgeir Valgeirsson gerði vel og vann seinni boltann eftir markspyrnu Víkings, sendi á Viktor Karl sem sneri snöggt og stakk inn fyrir á Tobias Thomsen. Danski framherjinn tók vel við boltanum og kláraði færið af öryggi.

Næstu fimmtán mínútur fengu liðin sitt hvort marktækifærið. Anton Logi leysti miðvarðarstöðuna fyrir Breiðablik en var oft illa staðsettur, gaf Valdimar fínan séns, en Viktor Örn var mættur undir í hjálparvörnina. Kristinn Steindórsson krullaði boltann svo rétt framhjá stönginni skömmu síðar í sókn Breiðabliks.

Breiðablik tvöfaldaði forystuna svo eftir rúmlega hálftíma leik. Viktor Karl gaf frábæra fyrirgjöf inn á teiginn, Tobias Thomsen dempaði boltann fyrir miðvörðinn Viktor Örn sem skoraði.

Fyrri hálfleikur flautaður snemma af

Víkingar voru vankaðir eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og virtust ekki líklegir til að minnka muninn fyrir hálfleik. 

Rétt fyrir hálfleik fengu Blikarnir hins vegar úrvalsfæri til að setja þriðja markið, eftir að einhver áhorfandi hafði blásið í flauta sem hann mætti með og látið Víking halda að fyrri hálfleikurinn væri búinn. 

Breiðablik var næstum því búið að nýta tækifærið en varnarmenn Víkings náðu áttum á ögurstundu og köstuðu sér fyrir skotið.

Mættu (ekki) með læti

Víkingar fóru tveimur mörkum inn í hálfleikinn og hafa væntanlega ætlað að mæta með læti út í seinni hálfleik, minnka muninn snöggt og setja svo jöfnunarmarkið. Sú áætlun gekk alls ekki upp.

Breiðablik hélt hins vegar sömu ákefð og liðið hafði sýnt í fyrri hálfleik. Sköpuðu sér tvö fín færi snemma í seinni hálfleik og settu svo þriðja markið þegar aðeins sjö mínútur voru liðnar.

Vippaði af yfirvegun

Tobias Thomsen var þar á ferð með frábæra afgreiðslu, vann skallabaráttu fyrst og kom boltanum á Ágúst Orra sem dansaði framhjá varnarmanni. Tobias fékk boltann svo aftur frá honum og vippaði yfir Ingvar í markinu af mikilli yfirvegun.

Tvö mörk og stoðsending hjá Dananum í dag, hann er nú jafn Eið Gauta í KR með sjö mörk og einu marki á eftir Patrick Pedersen í Val, í baráttunni um gullskóinn.

Matthías klóraði í bakkann

Víkingar náðu að minnka muninn undir lok leiks þegar Matthías Vilhjálmsson nýtti sér mistök Antons Ara, komst inn í sendingu og skoraði úr dauðafæri. Sigur Breiðabliks var þó ekki í neinni hættu og toppbarátta Bestu deildarinnar komin í algjöran hnút.

Víkingar fara í frí með eins stigs forskot

Víkingur er áfram í efsta sæti deildarinnar en nú með aðeins eins stigs forskot á Breiðablik, í stað sjö stiga forskots sem hefði náðst með sigri. Nú tekur við tveggja vikna landsleikjahlé. Breiðablik fer til Eyja sunnudaginn eftir tvær vikur, Víkingur tekur svo á móti KR degi síðar. 

Atvik leiksins

Þriðja markið gerði algjörlega út af við leikinn fyrir Víking og hefði líklega ekki átt að standa. Stór ákvörðun að dæma ekki brot þegar Tobias ýtir klárlega í bakið á Gunnari. Svo má spyrja sig hvort Tobias hafi hreinlega verið rangstæður.

Viðbrögð Sölva Geirs og markið sjálft má sjá í viðtalinu hér fyrir neðan. 

Stjörnur og skúrkar

Tobias Thomsen er vafalaust maður leiksins. Tvö mörk og stoðsending hjá Dananum í dag, ekki amalegt. Algjörlega óviðráðanlegur fyrir varnarmenn Víkings.

Viktor Karl átti frábæran leik á miðjunni, lagði upp fyrsta markið og átti fyrirgjöfina sem leiddi til annars marksins.

Enginn sérstakur skúrkur en lið Víkings var langt frá því að sýna sitt besta í kvöld. Byrjuðu ágætlega en eftir að hafa lent undir leit liðið aldrei út fyrir að ætla að gera leikinn spennandi.

Dómarar

Ívar Orri Kristjánsson, maðurinn sem kveikti í leiknum á Kópavogsvelli hitteðfyrra, stóð sig fínt á flautunni í kvöld. Fyrir utan þriðja markið það er að segja, sem hefði ekki átt að standa vegna bakhrindingar.

Að öðru leiti vel haldið utan um hlutina. Gulum spjöldum veifað en ekkert að óþörfu. Hafði hemil á Víkingum og veitti þeim tiltal þegar þeir fóru í pirringsbrot í seinni hálfleik.

Stemning og umgjörð

Allt saman algjörlega til fyrirmyndar. Big Glacier trylltur á trommunum og sendi sneiðar í sífellu til stuðningsmanna Víkings, sem mættu vel líka og höfðu hátt.

Breiðablik býður líka upp á besta matinn í deildinni, steik og bernaise, bilað kombó. Borgararnir á grillinu engu síðri. 

Stuðningsmenn gerðu því vel við sig í Grænu stofunni fyrir leik, voru mættir tæpum tveimur tímum fyrr að gíra sig í gang. Víkingar voru með sitt fræga forskott á sama tíma og af myndum að dæma var stemningin þrusufín. 

Halldór: Sjá svona frammistöðu í öllum leikjum, mikilvægari en stigamunurinn á liðunum

„Mjög sáttur við frammistöðuna, hún hefur verið svona á heimavelli núna á móti Víking, Val, Stjörnunni og KR, nákvæmlega þessi frammistaða en við þurfum að fá hana í hverjum einasta leik“ sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, fljótlega eftir leik. Hann vill sjá svona frammistöðu í hverjum einasta leik og mun ekki gefa sér mikinn tíma í að fagna sigrinum.

„Við getum ekki fagnað mikið meira en bara í kvöld, eða til svona ellefu. Svo þurfum við að finna út úr því hvernig við getum sett saman svona frammistöðu í hverjum einasta leik, því þegar við spilum svona erum við illviðráðanlegir.“

Breiðablik minnkar muninn að Víkingum niður í eitt stig með þessum sigri. Liðið hefði annars getað farið sjö stigum á eftir Víkingum, með þrjá tapleiki að baki, inn í landsleikjahlé.

„Auðvitað er það mjög mikilvægt. En sama hvernig þessi leikur hefði farið var þetta mót aldrei að fara að vinnast eða tapast í dag. Við getum ekki verið ofsa kátir núna og hefðum ekki getað farið í eitthvað þunglyndi ef þetta hefði farið illa. Auðvitað er mikilvægt hvort við erum einu, fjórum eða sjö stigum á eftir Víkingum. Það segir sig sjálft en mér fannst frammistaðan og viðbrögðin eftir síðasta leik það mikilvægasta“ sagði Halldór.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira