Erlent

Óttast að mörg hundruð séu látin

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Mun fleiri myndir hafa borist inn á fréttaveiturnar frá Bankok en frá Mjanmar en hér má sjá sjúklinga spítala í Bangkok bíða úti á götu.
Mun fleiri myndir hafa borist inn á fréttaveiturnar frá Bankok en frá Mjanmar en hér má sjá sjúklinga spítala í Bangkok bíða úti á götu. AP/Sakchai Lalit

Að minnsta kosti 20 eru látnir eftir að jarðskjálftar af stærðinni 7,7 og 6,4 riðu yfir Mjanmar í morgun. Skjálftarnir hafa valdið gríðarlegri eyðileggingu, bæði í Mjanmar og í Bangkok á Taílandi.

Óttast er að hundruð séu látin.

Fólk hefur verið varað við fleiri eftirskjálftum á næstu sex klukkustundum.

Átta létust og óttast er að fleiri séu fastir undir rústum eftir að hús í byggingu hrundi í Pyi Gyi Tagon í Mandalay, næst stærstu borg Mjanmar. 

Skjálftarnir áttu upptök sín inni í miðju landi.vísir/grafík

Þá eru þrír látnir eftir að háhýsi í byggingu í Bangkok hrundi. Varnarmálaráðherra Taílands segir 90 saknað en svo virðist sem fjöldi verkamanna hafi verið að störfum þegar skjálftarnir riðu yfir.

Fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá vettvangi í Bangkok.

Þrír létust einnig í bænum Taungoo í Mjanmar þegar hluti mosku hrundi í skjálftunum. Þá hafa óstaðfestar frengir borist af því að 20 hafi látist þegar moska hrundi í Mandalay og að tveir hafi látist og 20 særst þegar hótel hrundi í Aung Ban.

Stjórnvöld í Mjanmar hafa lýst yfir neyðarástandi í sex héruðum og þá hefur viðbragðsstjórn verið komið á laggirnar í Bangkok. Lögregla og viðbragðsaðilar vinna að því að aðstoða fólk við að koma sér úr eyðilögðum byggingum og til að stjórna umferð.

Fjöldi vega fór illa í skjálftunum.

Á samfélagsmiðlum má sjá fjölda myndskeiða sem sýna hrundar eða hálf-hrundar byggingar. Einnig má sjá fólk flýja út úr bygginum þar sem ryk hangir í loftinu.

Ferðamenn hafa lýst upplifun sinni af skjálftunum í samtali við AP og segja fólk hafa „öskrað og panikkað“ í verslunarmiðstöð og úti á götu í Bangkok.

Fraser Morgun sagði mikla hræðslu hafa gripið um sig í verslunarmiðstöðinni þar sem hann var staddur þegar fyrri skjálftinn reið yfir. Fólk hafi tekið á rás og meðal annars reynt að hlaupa niður rúllustiga á uppleið.

„Það var mikið um öskur og panikk“ segir hann.

Þá lýsir Pal Vincent frá Englandi því hvernig vatn gusaðist úr sundlaug ofan á háhýsi og aðrir byggingar hreinlega dönsuðu.

Rætt er við ferðamennina í myndskeiðinu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×