Segja úlfa stuðla að matarsóun og eiga því ekki að njóta verndar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. mars 2025 07:51 Úlfar stuðla að matarsóun og munu því ekki lengur njóta verndar á Spáni, segir þingið. Getty/Silas Stein Spænska þingið samþykkti í gær lagafrumvarp sem miðar að því að draga úr matarsóun í landinu, sem er talin nema um 1,2 milljörðum kílóa á ári.
Sem er ef til vill ekki í frásögur færandi, nema fyrir þá staðreynd að viðauki við lögin þýðir að banni við veiðum á úlfum verður í raun aflétt. Bandalag flokka undir forystu íhaldsflokksins Partido Popular talaði fyrir viðaukanum, þar sem því er haldið fram að úlfar stuðli að matarsóun með drápum sínum á um það bil 14 þúsund rollum og nautgripum árlega. Drápin verði til þess að um 14 milljón kíló af kjöti fara forgörðum, sem sé, jú, matarsóun. Gagnrýnendur hafa fordæmt viðaukann harðlega og segja tölurnar hér að ofan ekki byggja á neinum haldbærum gögnum. Um sé að ræða bakdyraleið til að opna aftur á úlfaveiðar. Úlfurinn verður nú ekki lengur á lista yfir verndaðar tegundir í landinu. Veiðimenn hafa spáð fyrir um mikla fjölgun úlfa á Spáni eftir að tegundin var vernduð árið 2021. Hún hefur hins vegar ekki raungerst og fjöldinn haldist stöðugur í kringum 2.500 einstaklinga.
Spánn Dýr Mest lesið Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Innlent Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Innlent Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Innlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Innlent „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Innlent Fleiri fréttir Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Æðsti leiðtogi mormóna látinn Banna dróna yfir Danmörku Óttast úrbræðslu vegna rafmagnsleysis í kjarnorkuveri Sjálft lýðræðið undir er Moldóvar ganga til kosninga Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Ráku starfsmenn FBI sem fóru á hnéð eftir morðið á Floyd Fundu leynilega sígarettuverksmiðju í neðanjarðarbyrgi Drónar sáust á flugi yfir herflugvelli í Danmörku og Noregi Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Sjá meira