Fótbolti

Segir endur­komu sam­herja Hákonar bíómyndaefni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nabil Bentaleb fór í hjartastopp í júní á síðasta ári. Hjartastuðtæki þurfti til að koma honum til meðvitundar áður en hann gekkst undir aðgerð þar sem gangráður var græddur í hann.
Nabil Bentaleb fór í hjartastopp í júní á síðasta ári. Hjartastuðtæki þurfti til að koma honum til meðvitundar áður en hann gekkst undir aðgerð þar sem gangráður var græddur í hann. getty/Franco Arland

Nabil Bentaleb, samherji Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille, skoraði í fyrsta leik sínum eftir að hafa farið í hjartastopp á síðasta ári.

Bentaleb fór í hjartastopp í júní í fyrra og í kjölfarið var óttast að hann þyrfti að leggja skóna á hilluna. Græddur var gangráður í Bentaleb í aðgerð sem hann gekkst undir eftir að hafa farið í hjartastoppið.

Á miðvikudaginn fékk Alsíringurinn leyfi frá franska knattspyrnusambandinu til snúa aftur á völlinn og í gær spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið.

Bentaleb kom inn á sem varamaður í leik Lille gegn Rennes í frönsku úrvalsdeildinni og var aðeins fjórar mínútur að koma gestunum yfir, 0-1. Chuba Akpom bætti öðru marki við skömmu seinna og gulltryggði sigur Lille.

Endurkoma Bentalebs var samt aðalmálið og eftir leikinn sagði knattspyrnustjóri Lille að hún ætti heima á hvíta tjaldinu.

„Þetta á skilið að vera í bíómynd. Hann á þetta skilið því ég trúi ekki á heppni. Hann trúði á sjálfan sig. Þetta er stórkostlegt, yndisleg saga,“ sagði Bruno Genesio, stjóri Lille.

„Mark Nabils kom okkur í góða stöðu. Það er erfitt að lýsa því. Þetta gæti verið augnablik sem verður greypt í sögu félagsins, þessa tímabils og huga Nabils, að sjálfsögðu.“

Bentaleb gekk í raðir Lille frá Angers fyrir tveimur árum. Hann lék áður með Tottenham, Schalke og Newcastle United.

Hákon var í byrjunarliði Lille í leiknum í gær og lék fyrstu 68 mínúturnar. Lille er í 5. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 38 stig eftir 22 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×