Innlent

Hafa þegar hafið undir­búning vegna veðurs

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Jón Þór Víglundsson hefur mestar áhyggjur af byggingarsvæðum.
Jón Þór Víglundsson hefur mestar áhyggjur af byggingarsvæðum. Stöð 2/Skjáskot

Aftakaveður er í kortunum á öllu landinu næstu daga og verulegar raskanir verða á flugsamgöngum. Björgunarsveitir hafa þegar hafið undirbúning vegna yfirvofandi óveðurs.

Gular viðvaranir taka gildi á vestanverðu landinu í kvöld en síðdegis á morgun verður farið að bera á appelsínugulum viðvörunum víðast hvar á landinu. Aðfaranótt fimmtudags verður allt landið undirlagt af slíkum viðvörunum, þar sem von er á sunnan illviðri með roki eða jafnvel ofsaveðri.

Icelandair hefur aflýst 38 ferðum á morgun og fimmtudag og seinkað öllu Evrópuflugi eftir hádegi á morgun. Play hefur aflýst öllum sínum ferðum á morgun nema þremur, en félagið gerir ráð fyrir óbreyttri áætlun á fimmtudag. 

Endurvinnslustöðvar Sorpu verða lokaðar á morgun, og var fólk hvatt til þess að fara í nauðsynlegar sorpuferðir fyrir lokun í dag.

Í gærmorgun fór hviða sem mældist 54 metrar á sekúndu á Austurlandi og olli skemmdum.

Illviðrinu hefur verið líkt við óveðrið í mars 2015. 

Hefur mestar áhyggjur af byggingarsvæðum

„Þetta er búið að vera í kortunum í svolítinn tíma. Sveitir, sérstaklega á Norðurlandi, hafa undirbúið sig fyrir þetta og farið sérstaklega yfir þann búnað sem gæti þurft að grípa til,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

Jón Þór segist hafa mestar áhyggjur af byggingarsvæðum.

„Mönnum verður hætta á að verða værukærir af því að það hefur ekki verið stórviðrasamur vetur en það eru byggingarsvæði. Síðan náttúrulega hvetjum við aðra til þess að líta í kringum sig. Þetta brestur ekki á fyrr en upp úr hádegi á morgun. Það er tími til þess að huga að lausamunum og því sem gæti farið af stað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×