Erlent

Birta bráða­birgða­skýrslu vegna slyssins

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Flugvél Jeju Air lenti á flugvellinum í Muan í Suður-Kóreu án þess að lendingarbúnaður hennar hefði verið virkjaður, rann eftir miðri flugbrautinni og skall á vegg við enda brautarinnar. 
Flugvél Jeju Air lenti á flugvellinum í Muan í Suður-Kóreu án þess að lendingarbúnaður hennar hefði verið virkjaður, rann eftir miðri flugbrautinni og skall á vegg við enda brautarinnar.  EPA

Yfirvöld í Suður-Kóreu munu birta bráðabirgðaskýrslu um flugslysið sem varð á flugvellinum í Muan í landinu í lok síðasta mánaðar, ekki síðar en á mánudag. Slysið er það mannskæðasta sem orðið hefur í landinu en 179 af 181 um borð létu lífið. 

Samgönguráðuneyti Suður-Kóreu greinir frá þessu í tilkynningu. Skýrslan verður send til Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem og yfirvalda í Bandaríkjunum, Frakklandi og Tælandi. Rannsakendur opinberra stofnana í þeim ríkjum hafa komið að rannsókninni á slysinu. 

Fram kemur að meðal annars sé til rannsóknar hvaða áhrif fuglaferðir um flugvöllinn höfðu á atburðarásina en skömmu fyrir slysið tilkynnti flugstjóri vélarinnar um neyðarástand, fuglar hefðu skollið á flugvélina. Tveimur mínútum fyrr hafði flugumferðarstjóri þegar varað við mögulegri hættu á fuglaferðum. 

Þá eru til rannsóknar hljóðupptökur úr flugstjórnarklefanum en þær upptökur stöðvuðust fjórum mínútum fyrir áreksturinn. Einhverjir mánuðir eru þar til þeirri rannsókn lýkur. Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að myndefni úr öryggismyndavélum sýni fugla í nánd við flugvélina meðan hún var enn í loftinu. 

Þá hafi fundist fjaðrir og andarblóð í vél flugvélarinnar. Enn sé ekki hægt að segja til um hvenær fuglarnir eiga að hafa skollið á flugvélina og því hvaða áhrif það hafði á atburðarásina. 

Loks segir að sérstök rannsókn muni fara fram á veggnum sem flugvélin skall á. Veggurinn, sem sérfræðingar segja hafa valdið því að slysið varð mannskæðara en það hefði annars verið, verði í framhaldinu fjarlægður. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×