Innlent

Sigurður Ingi segir á­berandi glufur sátt­málanum

Jakob Bjarnar skrifar
Sigurður Ingi sagði ýmislegt ahyglisvert við nýjan stjórnarsáttmála, einkum þó það sem ekki væri þar.
Sigurður Ingi sagði ýmislegt ahyglisvert við nýjan stjórnarsáttmála, einkum þó það sem ekki væri þar. vísir/vilhelm

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var í stuttu viðtali eftir að starfsstjórn Bjarna Benediktssonar skilaði inn lyklunum og stjórn Kristrúnar Frostadóttir tók við á Bessastöðum.

Sigurður Ingi sagði ítrekað að hann vildi spara sig í yfirlýsingum, hann vildi leyfa deginum að líða og nýrri stjórn að spegla sig í þessum nýju aðstæðum. Þá var hann sannfærður um að sagan myndi fara mildum höndum um verk Framsóknarflokksins á undangengnum árum. Þegar á hann var gengið gat hann þó ekki orða bundist:

„Það er margt áhugavert sem er í stjórnarsáttmálanum en kannski ekki síður það sem ekki er þar. Hefði ég kosið þessa flokka,“ sagði Sigurður Ingi.

Hann sagði að fyrir kosningar hefði verið talað um að það þyrfti að laga ýmislegt.

„Mér sýnist að það eigi að halda áfram að gera nákvæmlega það sem við vorum að gera. Þar eru boðuð allnokkur útgjöld. En engar tekjur. Leggja niður eitt ráðuneyti, spara nokkur hundruð milljónir þar. En ýmis útgjöld eru þarna nefnd kosta nokkra milljarða þannig að … Ég á eftir að sjá hvernig þær gera þetta.“

Sigurður Ingi er sem sagt þeirrar skoðunar að stórt bil sé milli kosningaloforða og svo þess sem stendur í stjórnarsáttmálanum, sem hann á reyndar eftir að lesa ítarlega, hann byggi sínar skoðanir á því sem þá hafði komið fram í fréttum.

Þá sagði formaður Framsóknarflokksins fráfarandi ríkisstjórn hafa staðið í ístaðinu. Hann lítur stoltur um öxl.

„Já, mjög. Ég er sannfærður um að í baksýnisspegli sagnfræðinnar verði litið til þessara tíu ára, eða allt frá 2013, sem einhvers mesta hagvaxtarskeiðs í sögu lýðveldisins. Þrátt fyrir það að við höfum tekist á við ótrúlegustu hluti eins og heimsfaraldur, jarðelda og stríð í Evrópu. Sem er nú fyrst og fremst það sem ég hef áhyggjur af næstu misserin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×