Sigurður Ingi segir áberandi glufur sáttmálanum Jakob Bjarnar skrifar 23. desember 2024 14:07 Sigurður Ingi sagði ýmislegt ahyglisvert við nýjan stjórnarsáttmála, einkum þó það sem ekki væri þar. vísir/vilhelm Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var í stuttu viðtali eftir að starfsstjórn Bjarna Benediktssonar skilaði inn lyklunum og stjórn Kristrúnar Frostadóttir tók við á Bessastöðum.
Sigurður Ingi sagði ítrekað að hann vildi spara sig í yfirlýsingum, hann vildi leyfa deginum að líða og nýrri stjórn að spegla sig í þessum nýju aðstæðum. Þá var hann sannfærður um að sagan myndi fara mildum höndum um verk Framsóknarflokksins á undangengnum árum. Þegar á hann var gengið gat hann þó ekki orða bundist: „Það er margt áhugavert sem er í stjórnarsáttmálanum en kannski ekki síður það sem ekki er þar. Hefði ég kosið þessa flokka,“ sagði Sigurður Ingi. Hann sagði að fyrir kosningar hefði verið talað um að það þyrfti að laga ýmislegt. „Mér sýnist að það eigi að halda áfram að gera nákvæmlega það sem við vorum að gera. Þar eru boðuð allnokkur útgjöld. En engar tekjur. Leggja niður eitt ráðuneyti, spara nokkur hundruð milljónir þar. En ýmis útgjöld eru þarna nefnd kosta nokkra milljarða þannig að … Ég á eftir að sjá hvernig þær gera þetta.“ Sigurður Ingi er sem sagt þeirrar skoðunar að stórt bil sé milli kosningaloforða og svo þess sem stendur í stjórnarsáttmálanum, sem hann á reyndar eftir að lesa ítarlega, hann byggi sínar skoðanir á því sem þá hafði komið fram í fréttum. Þá sagði formaður Framsóknarflokksins fráfarandi ríkisstjórn hafa staðið í ístaðinu. Hann lítur stoltur um öxl. „Já, mjög. Ég er sannfærður um að í baksýnisspegli sagnfræðinnar verði litið til þessara tíu ára, eða allt frá 2013, sem einhvers mesta hagvaxtarskeiðs í sögu lýðveldisins. Þrátt fyrir það að við höfum tekist á við ótrúlegustu hluti eins og heimsfaraldur, jarðelda og stríð í Evrópu. Sem er nú fyrst og fremst það sem ég hef áhyggjur af næstu misserin.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framsóknarflokkurinn Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Egill Þór er látinn Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Innlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Fleiri fréttir „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Sjá meira