Innlent

Kynna ráðherraskipan í Hafnar­borg

Jón Þór Stefánsson skrifar
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín munu leiða nýja ríkisstjórn.
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín munu leiða nýja ríkisstjórn. Vísir/Einar

Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa boðað til fréttamannafundar klukkan eitt á á morgun, laugardaginn 21. desember, í Hafnarborg í Hafnarfirði.

„Á fundinum verður kynnt stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar og greint frá skipan ráðherra,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að skrifstofa forseta Íslands veiti upplýsingar um ríkisráðsfundi. „Gert er ráð fyrir að lyklaskipti ráðherra fari fram á sunnudag.“

Samkvæmt heimildum Vísis verður Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, forsætisráðherra í þessari ríkisstjórn, sem hefur þegar verið kennd við valkyrjur.

Þá mun Viðreisn fá utanríkisráðuneytið og fjármálaráðuneytið, og Flokkur fólksins félagsmálaráðuneytið.

Hvað er Hafnarborg?

Hafnarborg er við Strandgötu 34 í Hafnarfirði. Um er að ræða menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar sem var stofnuð árið 1983. Þar er einnig aðsetur listaverkasafns Hafnarfjarðarbæjar.

Á síðu safnsins segir að húsið hafi upphaflega verið hannað af Guðjóni Samúelssyni, arkitekt, fyrir Sören Kampmann lyfsala sem bjó í húsinu og rak apótek frá árinu 1921. Sverrir Magnússon tók síðan við húsinu og rekstrinum árið 1947. Það voru hjónin Sverrir og lyfjafræðingurinn Ingibjörg Sigurjónsdóttir sem gáfu Hafnarfjarðarbæ húsið og kváðu á um að þar skyldi starfrækt menningarstofnun.

Hafnarborg var formlega vígð árið 1988, en þá var búið að reisa viðbyggingu sem var hönnuð af Ingimar H. Ingimarssyni, arkitekt.

Hafnarborg í Hafnarfirði.Vísir/Vilhelm

Greint var frá því í gær að samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups væri umrætt ríkisstjórnarsamstarf  Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins það sem langflestir svarendur hefðu áhuga á að sjá. 

Þá sögðust flestir sáttir við niðurstöður alþingiskosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×