Viðskipti innlent

Heimkaup undir hatt Samkaupa

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Höfuðstöðvar Heimkaupa eru í Smáratorgi.
Höfuðstöðvar Heimkaupa eru í Smáratorgi.

Samkaup og Heimkaup hafa komist að samkomulagi um helstu forsendur sameiningar félaganna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SKEL hf., sem er eigandi að 81% hluta í Heimkaup. Þar segir að samkomulagið sé með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafund beggja félaga.

„Samkaup er yfirtökufélagið og sameinast þar með öllum einingum Heimkaupa á matvörumarkaði og greiðir fyrir þau með útgefnu hlutafé í Samkaupum. Önnur félög í eigu SKEL á neytendamarkaði, þ.e. Orkan, Lyfjaval og Löður, eru ekki hluti af samrunanum.“

Haft er eftir Ásgeiri Helga Reykfjörð Gylfasyni forstjóra SKEL fjárfestingarfélags hf. að sameinað félag hafi burði til að nýta sér þau tækifæri sem nú eru á dagvörumarkaði.

Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason.

„Neytendur kalla á aukna samkeppni og nýungar á smásölumarkaði eins og móttökur Prís verslunarinnar sem opnaði fyrr á árinu sýna. Heimkaup hefur frá upphafi lagt áherslu á nýjungar á borð við netverslun og nú síðast með Prís sem ítrekað hefur boðið neytendum lægsta verð á mat- og dagvöru. Hagsmunir SKEL eru áfram þeir sömu á smásölumarkaði með hlutdeild í Samkaup og óbreyttu eignarhaldi á Lyfjavali og Orkunni. SKEL mun áfram leita leiða til að auka samkeppni og fjölbreytni með arðbærum hætti í fjárfestingum sínum á smásölumarkaði,“ segir Ásgeir.

Þetta merkir að undir rekstri Samkaupa verða verslanir undir merkjum 10-11, Prís, Extra auk þriggja þægindaverslana sem reknar eru á þjónustustöðvum Orkunnar. Þá á Heimkaup eignarhlut í veitingafélaginu Clippers ehf. sem m.a. rekur Sbarro.

SKEL fjárfestingafélag hf. og Samkaup hf. hafa á árinu átt í viðræðum um samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga SKEL. 

„Þeim viðræðum var slitið í lok október en í framhaldinu hófust viðræður um sameiningu rekstrareininga á matvælamarkaði. Að mati samrunaaðila getur samlegð í rekstri umræddra félaga orðið umtalsverð.

Eftir sameiningu fái hluthafar Heimkaupa greitt með hlutafé í Samkaupum og eignast þar með rúmlega 10% hlutafjár í Samkaupum. Fyrir viðskiptin er SKEL eigandi að 5% eignarhlut í Samkaupum í gegnum eignarhaldsfélag. Hluthafasamkomulag meðal stærstu hluthafa í Samkaupa gerir ráð fyrir skráningu félagsins á hlutabréfamarkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×