Innlent

Læknar undir­rita nýjan kjara­samning

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Fundað var í viðræðunum frá því klukkan níu í gærmorgun og þar til klukkan tvö í nótt.
Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Fundað var í viðræðunum frá því klukkan níu í gærmorgun og þar til klukkan tvö í nótt. Vísir/Arnar

Læknar undirrituðu nýjan kjarasamning við ríkið rétt fyrir klukkan tvö í nótt, sem miðar meðal annars að því að bæta vinnutíma og draga úr álagi.

Frá þessu greinir Ríkisútvarpið.

Að sögn Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélags Íslands, náðust öll helstu markmið lækna í samningaviðræðunum en hún vildi ekki tjá sig um nákvæma útfærslu þegar RÚV tók hana tali í nótt.

„En svona í stórum dráttum snýst þetta um betri vinnutíma fyrir lækna, þar með talin stytting vinnuvikunnar niður í 36 stundir. Þetta er auðvitað svolítið að fyrirmynd samninga sem gerðir hafa verið við aðra stéttir á undanförnum árum,“ sagði hún.

Steinunn segir að stefnt sé á fyrsta kynningarfund fyrir lækna á mánudaginn og fleiri í kjölfarið, þar sem fara þurfi yfir samninginn með læknum um allt land. 

Óvíst er hvenær atkvæðagreiðsla um samninginn hefst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×