Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Norðmaðurinn var ekki sáttur.
Norðmaðurinn var ekki sáttur. EPA-EFE/DANIEL HAMBURY

Englandsmeistarar Manchester City töpuðu fjórða leiknum í röð þegar þeir sóttu Brighton & Hove Albion heim í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Pressan á Englandsmeistarana var orðin nokkur fyrir leik enda liðið ekki vant að tapa leik eftir leik. Til að setja það í samhengi hafði Pep Guardiola aldrei tapað fjórum leikjum í röð á þjálfaraferli sínum.

Guardiola á hliðarlínunni.EPA-EFE/DANIEL HAMBURY

Það hefur því glatt Pep og stuðningsfólk Man City þegar boltinn barst til norsku markamaskínunnar Erling Haaland um miðbik fyrri hálfleiks. Hann tæklaði knöttinn í netið og gestirnir komnir yfir. Héldu þeir í þá forystu fram í hálfleik.

Í síðari hálfleik gerðu heimamenn skiptingar í von um að komast inn í leikinn á nýjan leik. Þeir höfðu ógnað marki gestanna áður en jöfnunarmarkið kom. Boltinn var laus í teignum og náðu gestirnir ekki að hreinsa. 

Það nýtti varamaðurinn João Pedro sér og skoraði af mikilli yfirvegun. Hans þriðja mark á leiktíðinni en hann hefur nú skorað á móti Man United, Arsenal og Man City.

Fimm mínútum síðar átti Pedro frábæra sendingu inn á teig þar sem annar varamaður, Matt O‘Riley, skilaði í netið og staðan óvænt orðin 2-1 heimamönnum í vil.

Þrátt fyrir að sækja og sækja undir lok leiks vildi boltinn ekki inn og Brighton vann frækinn 2-1 sigur. Fjórða tap Man City í röð jafnframt staðreynd. Gestirnir eru því áfram tveimur stigum á eftir toppliði Liverpool sem mætir Aston Villa síðar í kvöld. Á sama tíma er Brighton í 4. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira