Erlent

Halda á­fram leit í rústum flóðanna í dag

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bærinn Paiporta varð einna verst úti í flóðunum. Forsætisráðherra landsins, Pedro Sanchez, mun í dag heimsækja miðstöð viðbragðsaðila í bænum.
Bærinn Paiporta varð einna verst úti í flóðunum. Forsætisráðherra landsins, Pedro Sanchez, mun í dag heimsækja miðstöð viðbragðsaðila í bænum. Vísir/EPA

Halda á leit áfram í Valencia á Spáni þar sem hamfaraflóð hófust í fyrradag. Alls eru 95 látin en líklegt er að sú tala eigi eftir að hækka þegar líður á daginn. Mikill fjöldi viðbragðsaðila frá lögreglu, her og björgunarsveitum mun í dag leita að fólki. Tugir eru enn týnd. 

 Ekki hafa svo margir látist í flóðum á Spáni í áratugi. Fjöldi er enn án rafmagns og margir vegir enn lokaðir vegna hamfaranna. Þar eru þúsundir bíla fastir. Lestarsamgöngur í Valencia hafa víða verið stöðvaðar.

Pedro Sanchez, forsætisráðhera landsins, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg. Hann mun heimsækja miðstöð viðbragðsaðila í bænum Paiporta í dag en þar varð fólk hvað verst úti. Greint er frá á spænska miðlinum El País. 

Í frétt breska miðilsins Guardian segir að varnarmálaráðherra landsins hafi sagt í viðtali við útvarpsstöðina Cadena Ser að sérhæft leitarlið innan spænska hersins myndi í dag byrja að leita að fólki í drullu og rústum. Til þess myndu þau til dæmis nota leitarhunda. Hún sagði í viðtalinu yfirvöld ekki bjartsýn á að það finnist ekki fleiri látnir. Teymið verður með sér 50 færanleg líkhús.

Meiri rigningu er spáð í dag í austurhluta Valencia sem varð verst úti. Í Tarragona og Castellón í norðaustri hafa verið gefnar út appelsínugular veðurviðvaranir. Í suðvestur hluta hafa verið gefnar út gular viðvaranir, þar er í Cádiz, Huelva og Sevilla samkvæmt spænska miðlinum El País.

Mikill fjöldi fólks leitar nú að ástvinum sínum og auglýsir eftir þeim á samfélagsmiðlum.

Seint viðbragð

Í frétt Guardian segir að fólk velti því nú fyrir sér hvort eitthvað hafi brugðist í viðbrögðum yfirvalda. Hvort fólk hefði ekki átt að vera látið vita fyrr af hættunni.

Rigningin hófst í upphafi vikunnar og leiddi svo til flóða. Gefin var út rauð veðurviðvörun á miðvikudag en það var svo aðeins um kvöldið sem að yfirvöld í héraðinu skipulögðu nokkuð viðbragð. Skilaboð til fólks um að yfirgefa ekki heimili sitt var ekki sent fyrr en eftir 20 um kvöldið og var of seint fyrir marga. Fólk festist á vegum og komst ekki neitt áfram.

Ekki hafa verið svo slæmt flóð á Spáni síðan 1996 þegar 87 létust í flóðum á tjaldsvæði í Pyranees fjöllum. Styttra er frá hamfaraflóðum í Evrópu en árið 2021 létust 243 í flóðum í Þýskalandi, Belgíu, Rúmeníu, Ítalíu og Austurríki.

Hlýnun Miðjarðarhafsins

Hamfararigningin hefur verið tengd við fyrirbæri sem kallað er „gota fría“ eða „kaldi dropinn“ sem gerist þegar kalt loft fer yfir heitan sjóinn í Miðjarðarhafinu. Það valdi óstöðugleika í andrúmsloftinu sem leiði til þess að heitt og blautt loft rís hratt og veldur að lokum þungri rigningu og þrumuveðri.

Í frétt Guardian segir að hlýnun Miðjarðarhafsins, sem eykur uppgufun vatns, spili lykilhlutverk í því að gera úrhellisrigningu alvarlegri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×