Skoðun

Staða barnafólks á Ís­landi

Steindór Örn Gunnarsson, Agla Arnars Katrínardóttir, Agnes Lóa Gunnarsdóttir, Árni Dagur Andrésson, Hildur Agla Ottadóttir, Kári Freyr Kane og Oddur Sigþór Hilmarsson skrifa

Íslenskar konur hafa aldrei eignast jafn fá börn og nú og Ísland stendur verr að vígi þegar kemur að jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs heldur en nær öll önnur Evrópuríki samkvæmt lífsgæðasamanburði OECD. Þetta er afleiðingin af áralöngu sinnuleysi stjórnvalda og löggjafans gagnvart barnafólki sem birtist meðal annars í veiku fæðingarorlofskerfi og þeirri staðreynd að lög um tekjustofna sveitarfélaga gera ekki ráð fyrir að reknir séu leikskólar á Íslandi.

Á meðal streituvalda í lífi barnafólks á Íslandi eru of lágar fæðingarorlofsgreiðslur, of stutt fæðingarorlof og of löng bið eftir leikskólaplássi.

Lágmarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóði til foreldra sem vinna 100% starf eru 222.500 krónur á mánuði og fæðingarstyrkir til foreldra sem stunda 100% nám eru 222.494 krónur á mánuði. Þessar greiðslur duga ekki fyrir framfærslu og hvetja til þess að konur gangi fram af sér í vinnu á meðgöngu, en einnig eru konur þvingaðar til þess að ganga á veikindarétt sinn á meðan meðgöngu stendur.

Fæðingarorlof er aðeins 12 mánuðir, sem foreldrar skipta á milli sín, og eftir það taka við 6-12 mánuðir þar sem foreldrar þurfa sjálfir að brúa bilið áður en barnið fær pláss á leikskóla, sem er almennt við 18-24 mánaða aldur. Á þessu tímabili þurfa foreldrar annað hvort að vera utan vinnumarkaðar til að sinna barninu með tilheyrandi tekjumissi eða borga fúlgur fjár fyrir pláss hjá dagforeldri. Við þær aðstæður sem íslensk stjórnvöld bjóða barnafólki upp á getur reynst foreldrum erfitt að forgangsraða heilsu fjölskyldu sinnar og tengslamyndun með barninu sínu á meðgöngu og fyrstu ár barnsins. Velferðarríki verður að gera betur.

Fjárfesting í fjölskyldum er fjárfesting í heilbrigði samfélagsins til langs tíma. Hallveig - ungt jafnaðarfólk í Reykjavík kallar eftir því að ríki og sveitarfélög ráðist strax í markvissar aðgerðir til að skapa fjölskylduvænna samfélag og bæta aðstæður barnafólks á Íslandi.

Fyrsta skrefið er að Alþingi sameinist um þær breytingar á fæðingarorlofskerfinu sem þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ítrekað flutt frumvarp um: að lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækki svo viðmiðunartekjur þeirra tekjulægstu verði ekki skertar, að lögfest verði launað meðgönguorlof fjórum vikum fyrir fæðingu barns og að ungbarnafjölskyldum verði tryggður aukinn sveigjanleiki með rétti til vinnutímastyttingar.

Þá er löngu tímabært að ríki og sveitarfélög sameinist um aðgerðir vegna kerfisbundins vanda við fjármögnun, mönnun og rekstur leikskóla, styttri leiðir að fagmenntun fyrir starfsfólk leikskóla verði efldar og rétturinn til leikskóladvalar við ákveðinn aldur festur í lög.

Höfundar eru í stjórn Hallveigar- ungs jafnaðarfólks á Íslandi




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×