Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Jakob Bjarnar skrifar 15. febrúar 2024 07:00 Hjartaknúsarinn Friðrik Dór er einlægarari en nokkru sinni fyrr á nýju plötunni sinni Mæður. vísir/vilhelm Friðrik Dór Jónsson, einn afkastamesti tónlistarmaður landsins, var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur. Friðrik Dór segist vera persónulegri á nýju plötunni en nokkru sinni fyrr.
Friðrik Dór Jónsson er gestur Einars Bárðar í nýjasta þætti hans af Einmitt. Þeir félagarnir ræða hvernig Friðrik semur tónlistana og hvernig hann velur samstarfsaðila og viðfangsefnin. Lífið sem er ljúft alveg til enda og hvernig Friðrik vill sjá heiminn þegar hann skilur við. Þá ræða þeir feril Friðriks, sem hefur verið einkar farsæll þrátt fyrir hæðir og lægðir alveg frá fyrsta laginu hans Hlið við hlið, að síðasta stóra verkefni Friðriks sem er popptilraunaverkefnið Iceguys. Lögin á Mæður er persónulegri „Lögin á Mæður eru lög sem fóru ekki á Dætur af því að þau voru of „fullorðin“ og pössuðu ekki alveg inn í hljóðheim Dætra. Lögin fjalla meðal annars um hvernig Friðrik óskar sér að skilja við og kveðja, þegar sá tími kemur. Þá er fjallað um ríkidæmið í okkar nánustu og samböndin okkar við þau. „Platan átti fyrst að heita „Blóm fyrir mömmu“ en þegar ég er í göngutúrum með stelpunum mínum í Setbergshrauninu þá fara þeir oftar en ekki í það að tína blóm fyrir mömmu,” segir Friðrik. Hann bætir því við að hann hafi hannað umslagið sjálfur sem er enn ein rósin í hnappagat Friðriks. „En svo seinna í ferlinu fannst mér það bara passa að hún fengi nafnið Mæður.“ Tal þeirra Einars berst að lagi á plötunni sem heitir Að sumri til en sá texti er ansi persónulegur. Þar er Friðrik að tala um þegar hann kveður lífið, saddur og sæll lífdaga. Einar spyr hann út í þetta yrkisefni sem ekki margir popptónlistarmenn taki sér sem yrkisefni. Friðrik er fljótur til svars: „Nei ekki af þessum hressu,” segir hann og hlær. Hann útskýrir svo aðdraganda og tilurð lagsins sem kviknaði þegar hann hafði spilað nokkrum sinnum með stuttu millibili í jarðaför hjá fólki sem kvatt. Það var honum umhugsunarefni sem svo birtist í þessu lagi. Síðasta skipti breytti öllu Í aðdraganda Söngvakeppninnar árið 2015 var Friðrik alls óviss um framtíð sína í tónlist. Hann og eiginkona hans Lísa höfðu eignast sitt fyrsta barn og framtíðarvæntingar hans til sjálfs síns voru að óræðar. „Stop Wait Go-strákarnir höfðu verið beðnir að senda inn lag í keppnina og ég reyndar líka. Við ákváðum að slá saman í eitt lag sem varð „Síðasta skipti“ lagið var að mestu tilbúið en ég kom aðeins að textanum.” Lísa Hafliðadóttir, Friðrik Dór og dóttir þeirra Ásthildur.vísir/elín björg Einar segist sjá nokkuð skýra umbreyting á ferli Friðriks í kjölfar úrslitana. „Mesta blessun þessa lags og líklega mín var að það vann ekki,“ segir Friðrik. „Þá er ekki hægt að valda þjóðinni neinum vonbrigðum,” skýtur Einar inn í reynslunni ríkari eftir að hafa sjálfur unnið Söngvakeppnina, ætlað að vinna Eurovision sem varð ekki. Friðrik er sammála því. „Maður missir af því tækifæri” segir hann. Friðrik segist hafa rætt þessa ákvörðun við sitt nánasta samstarfsfólk og Mána Pétursson umboðsmanninn sinn. „Ég tók svo ákvörðun að fara í keppnina og um leið að fara bara „all in“ í hana og hleypa fólki nær mér. Sýna meira hver ég er og í framhaldinu tók ég líka ákvörðun um að syngja meira. Fyrri lögin mín eru meira flæði og rapp ef maður vill kalla það rapp. En lögin eftir það eru meira sönglög heldur en hitt.“ Máni er korter í sálfræðing Talið berst að samstarfi Friðriks og Mána Péturssonar umboðsmanns Friðriks. Þeir hafa unnið saman í mjög langan tíma og átt farsælt samstarf. „Samstarf okkar er miklu meira en bara einhver umboðsmaður. Máni er markþjálfi og sponsor hjá AA þannig að það er gott að hafa hann nálægt. Hann passar að hausinn á mér sé rétt skrúfaður á. Bræðurnir Jón Ragnar og Friðrik Dór. En móðir þeirra hefur staðið í ströngu við að leiðrétta þann misskilning, sem fram kom í þáttunum um Iceguys, að henni þætti vænna um Friðrik en Jón.vísir/silvía hall Peppar mann þegar maður þarf á því að halda en gagnrýnir líka. Hann er korter í einhvern sálfræðing líka.” Nýjasta ævintýri Friðriks Dórs og félaga hans í Ice Guys er að sjálfsögðu rætt einnig. Hvernig kom það til? „Þetta snerist í alvörunni bara um; eigum við ekki bara að gera eitthvað fyndið, skemmtilegt, jákvætt og gaman? Af því að, eins og þú segir, það vantaði engan okkar neitt að gera.” Friðrik Dór segir að hugmyndin sé upprunalega Jóns bróður hans og tekur líka af allan vafa um það að mömmu þeirra þyki ekki vænna um sig heldur en Jón bróður sinn. Það hefur hún ítrekað tekið fram á Facebook eftir að þættirnir komu út. Samtal þeirra Einars og Friðriks má finna í heild sinni hér.
Tónlist Samfélagsmiðlar Bíó og sjónvarp Ástin og lífið Hafnarfjörður Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir Sonur Walter White er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira